Fjarlægðu hraðahindrun

Tveir sautján ára piltar fjarlægðu hraðahindrun í Mosfellsbæ í nótt. Til þeirra sást og hafði lögregla hendur í hári þeirra skömmu síðar. Piltarnir báru því við að vinir þeirra hefðu skemmt bílana sína á þessari hindrun og því ákváðu þeir að taka lögin í sínar hendur, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.

Þeim var gerð grein fyrir að svona framkoma væri með öllu óheimil, að sögn lögreglu, en málalyktir urðu síðan þær að piltarnir skiluðu hraðahindruninni og komu henni aftur fyrir á sínum stað. Um var að ræða svokallaða hraðahindrunarklossa.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert