Göngustígar endurnýjaðir og vegarslóð í Öskjuhlíð lokað

Kort af svæðinu, af vef framkvæmdasviðs Reykjavíkurborgar
Kort af svæðinu, af vef framkvæmdasviðs Reykjavíkurborgar

Vegna framkvæmda við undirbúning lóðar fyrir framtíðarhúsnæði Háskólans í Reykjavík við Nauthólsvík, verður vegarslóð sem liggur um Öskjuhlíð frá Hlíðarfæti að Kirkjugörðum Reykjavíkur lokað á mánudag. Gert er ráð fyrir að hún verði lokuð til hausts 2009 eða þar til byggingarframkvæmdum lýkur. Aðkoma bíla að Nauthólsvík er því eingöngu um Flugvallarveg og Hlíðarfót.

Lokunin tengist nýrri legu á göngu- og hjólastíg meðfram Öskjuhlíð, en verið er að færa hann út fyrir byggingasvæði Háskólans í Reykjavík. Stígurinn verður tekinn í notkun áður en eldri stígur verður aflagður og mun þessi framkvæmd því ekki trufla umferð um stíginn, samkvæmt upplýsingum frá Reykjavíkurborg.

Samhliða vinnu við stíginn er hafinn undirbúningur á færslu Hlíðarfótar (sem liggur í framhaldi af Flugvallarvegi) í samræmi við nýtt deiliskipulag. Þar sem unnið er í námunda við flugvöllinn hafa verktakar fengið fræðslu hjá Flugstoðum til að tryggja öryggi í tengslum við flug og liðka fyrir samskiptum. Aðkoma að Nauthólsvík verður opin allan framkvæmdatímann, en vegfarendur eru beðnir um að sýna aðgát og tillitssemi.

Undirbúningur lóðar og vegagerð er samstarfsverkefni Framkvæmdasviðs Reykjavíkurborgar, Orkuveitu Reykjavíkur og Mílu ehf. Verktaki við stíga og vegagerð er ÍAV. Kostnaður við framkvæmdina er um 200 milljónir króna. Verkefnisstjórar Framkvæmdasviðs eru Ársæll Jóhannsson og Höskuldur Tryggvason, tæknifræðingar hjá mannvirkjaskrifstofu Framkvæmdasviðs.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert