Faldi sig fyrir lögreglu í runna

Einn ökumaður bifreiðar var mældur á 126 km hraða á Suðurlandsvegi við Selfoss. Ökumaðurinn reyndi að sleppa undan lögreglu og keyrði inn á malarveg. Þá reyndi hann að fela sig í runna til þess að sleppa en allt kom fyrir ekki.

Ökumaðurinn hefur verið með ökuleyfi í eitt ár en hefur safnað mörgum punktum og er við það að missa leyfið að sögn lögreglunnar á Selfossi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert