Síðustu gestir Menningarnætur á leið heim

Mikill viðbúnaður var hjá lögreglu vegna Menningarnætur
Mikill viðbúnaður var hjá lögreglu vegna Menningarnætur mbl.is/Júlíus

Mikill erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í alla nótt vegna Menningarnætur. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu eru síðustu gestirnir að halda heim á leið en mikil ölvun var í miðborginni í nótt. Gríðarlegur fjöldi lagði leið sína í miðbæinn í gærkvöldi og mundi varðstjóri ekki eftir öðrum eins fjölda á Menningarnótt. Umferðin gekk greiðlega eftir að flugeldasýningunni lauk á tólfta tímanum en öll umferðarljós á helstu leiðum út úr miðbænum voru stillt á gult blikkandi til að flýta fyrir umferð.

Flugeldasýning var klukkan 23 í gærkvöldi
Flugeldasýning var klukkan 23 í gærkvöldi mbl.is/Júlíus
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert