Þjófur handtekinn í Kópavogi

Karlmaður um fertugt var handtekinn í Kópavogi í gær en í bíl hans fundust allmargir hlutir sem maðurinn gat ekki gert grein fyrir. Lögreglan segir að talið sé að um þýfi sé að ræða en maðurinn stal einnig bíl í gær og tók úr honum ýmsa muni.

Þegar maðurinn var handtekinn var hann kominn á sinn eigin bíl en hann mun líka þurfa að svara til saka fyrir að aka bæði sviptur ökuleyfi og undir áhrifum fíkniefna.

Hálffertug kona var sömuleiðis handtekin á vettvangi í Kópavogi vegna aðildar sinnar að málinu en hún var jafnframt eftirlýst hjá lögreglu fyrir aðrar sakir.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert