Fundin heil á húfi

Guðbergur Rafn Ægisson liðsmaður Björgunarsveitarinnar Garðars á Húsavík, að undirbúa …
Guðbergur Rafn Ægisson liðsmaður Björgunarsveitarinnar Garðars á Húsavík, að undirbúa leit að konu í Kverkfjöllum. mbl.is/Hafþór

Kona sem leitað var að í Kverkfjöllum er fundin heil á húfi. Það voru landverðir í Sigurðarskála sem gengu fram á konuna þar sem hún var stödd í Hveragili. Rúmlega 50 björgunarsveitarmenn Slysavarnafélagsins Landsbjargar voru við leit. Þegar konan fannst voru leitarhundar frá Reykjavík og Akureyri á leið á staðinn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert