Leituðu til nágranna í neyð
Harpa og Orri sonur hennar Ljósmynd Adam Eliasen
unas@mbl.is
„Ég endaði á því að banka upp á hjá konu sem ég þekki ekki neitt og spyrja hana hvort hún vildi passa fyrir mig," segir Harpa Rut Hilmarsdóttir, kennari í Reykjavík og móðir tveggja drengja, 14 mánaða og tveggja og hálfs árs gamalla. Harpa hefur nú ráðið sig í vinnu eftir að hafa verið í fæðingarorlofi undanfarið ár. Á tímabili leit þó út fyrir að hún neyddist til að segja upp starfinu áður en það hæfist, því yngra barnið kemst hvergi að í dagvistun. Eldri drengurinn fékk pláss á leikskóla 20 mánaða gamall en sá yngri hefur verið á biðlista hjá dagmóður um nokkurra mánaða skeið án árangurs.
"Fólk hlær oftast nær að manni ef maður biður um pláss eftir 6 mánuði," segir Harpa. "Þær dagmæður sem eru góðar eru svo umsetnar að maður kemst ekki að nema maður skrái barnið helst í móðurkviði." Tilraunir til að ráða au pair voru einnig til einskis og sáu Harpa og eiginmaður hennar því fram á að annað þeirra þyrfti áfram að vera heimavinnandi nema þau gripu til örþrifaráða. Þau vissu að í næsta húsi byggi barngóð kona sem væri mikið heima við á daginn. "Ég endaði sem sagt á því að ganga mjög þungum skrefum til nágranna míns sem ég þekki ekkert og sagðist myndu borga henni hvað sem væri ef hún passaði son minn, þó ekki væri nema einn dag í viku."
Við tók mikið púsluspil sem small að lokum þannig að nágrannakonan tekur við drengnum tvo daga í viku, annar afi hans passar einn dag í viku og hinum tveimur skipta þau hjónin á milli sín með því að koma heim frá vinnu. "Við erum bara heppin að fá þessa yndislegu konu og afa barnsins til að hlaupa í skarðið en þetta á ekki að þurfa að vera svona."
Vantar önnur úrræði
Hún gagnrýnir að borgin hafi ekki önnur úrræði en dagforeldra, með margra mánaða biðlista, til að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskólavistar. Á meðan ungbarnaleikskólar eða vöggustofur séu ekki í boði vilji hún heldur fá sjálf heimagreiðslu til að vera með syni sínum en að fá styrk fyrir pössun hjá ókunnugri dagmóður."Af hverju fæ ég niðurgreiðslu ef önnur manneskja annast börnin mín en ekki ef ég vil gera það sjálf?" spyr Harpa. Henni hefur verið sagt að sonur hennar komist í fyrsta lagi að næsta haust á sama leikskóla og eldri bróðir hans sækir, þá 26 mánaða gamall. |
Sjá fréttaskýringu í Morgunblaðinu í dag.
Bloggað um fréttina
-
Geir G Forgangsröðun -
Guðrún Emilía Guðnadóttir Ófremdar ástand. -
Heidi Strand Þarfir barnsins -
-
Innlent »
- Bað hana að leyna bréfunum
- Málið var kært, en fellt niður
- Óvíst um fordæmisgildi
- Farþegum með Norrænu fækkaði
- Undir áhrifum á ótryggðum bíl
- Ólafur Ingi: Fagstétt útrýmt?
- Ný stjórn Röskvu
- Innkalla rjómasprautu
- Geir Jón gefur kost á sér
- Má gera athugasemdir í næsta blaði
- Kærir Snorra til lögreglu
- Hvessir undir Eyjafjöllum
- Jón Baldvin biðst afsökunar á bréfi
- 5,5 laxar í þúsund tonnum makríls
- Stöðvarhúslóð í Bjarnarflagi könnuð
- Brotist inn í Húsaskóla
- Þvottavélin lokaði hurðinni
- Borgarstarfsmenn ósáttari
- Ekkert samráð um frumvarpið
- Ferðamannastraumur til Akureyrar
- Heimsmeistari kvenna í skák keppir hér á landi
- Vindorka könnuð og kortlögð
- Virðingarleysi við vinnu allra
- Vestan stormur við suðurströndina í kvöld
Miðvikudagur, 22.2.2012
- Dráttur í beinni
- Þingmenn lesa Passíusálmana
- Ísing á Hellisheiði
- Lánað án trygginga og heimildar
- Allt að 100 ný störf
- Fimm sviptir á Suðurgötu
- Lagaramminn ekki sá einfaldasti
- Mikið sungið í bankanum
- Lögðu hald á marijúna og e-töflur
- Ábendingar til borgarinnar
- 2,1 milljarður í þróunarsjóði
- Jón Baldvin íhugar lögbann
- Varasamur vegarkafli
- Færri fara í tæknifrjóvganir
- Notaði munnhörpu sem hnúajárn
- Fá ekki frítt í sund
- Segist ekki saka sýslumenn um lögbrot
-
Ómarkviss þjóðaratkvæðagreiðsla
- Varað við lúmskri ísingu
- „Þetta eru forkastanleg vinnubrögð“
- Aftur til stjórnlagaráðs
- Vill ESB-tillögu á dagskrá
- Nokkur fjöldi mála í athugun
- Hæfileikakeppni á mbl.is og Skjá einum
- Fjallað um bréf Jóns Baldvins til unglingsstúlku
- Vilja úttekt á stöðu verslunar í miðborginni
- Lýst eftir stolnum bíl
- Fordæma árás á starfsmann
- Litskrúðugt og líflegt í Fríhöfninni
- Ráðist á einn stjórnenda Dróma
- Umfjöllun í Nýju lífi um bréf Jóns Baldvins Hannibalssonar
- Grunnskólakennari fordæmir samkynhneigð
- Fjárlagafrumvarp 2011
- Landsdómur
- Kvótafrumvarp
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 10. apríl 2008, Innlent Nýbökuð móðir fær engan fæðingarstyrk
- Föstudagur, 12. október 2007, Innlent Foreldrarnir völdu fatlaða barnið
- Miðvikudagur, 3. september 2008, Innlent Öllum börnum tryggð dagvistun
- Föstudagur, 15. desember 2006, Innlent Heimavinnandi foreldrar í Hvalfjarðarsveit fá greiddar 35 þúsund krónur
- Sunnudagur, 8. júlí 2007, Innlent Þorsteinn Sturla lætur taugahrörnunarsjúkdóm ekki slá sig út af laginu
-
Hundarnir finna dópið strax
-
Umferðamiðstöð sprengd í Peshawar
-
Færir Advania forystu?
-
Fangaverðir hjálpuðu föngum að flýja
-
Fundu lík fimm ára stúlku
-
Talinn hafa skotið bekkjarsystur sína
-
Kristrún: Eigum séns á að komast í úrslitakeppnina
-
Bragi: Sorglegt baráttuleysi




































