Ljót heimkoma fjölskyldu í Garðabæ

Fjölskyldu í Garðabæ var mjög brugðið er hún kom heim úr þriggja vikna fríi um klukkan átta í gærkvöldi. Brotist hafði verið inn á heimili hennar og höfðu hinir óboðnu gestir greinilega haldið þar til um einhvern tíma. Umgengin var að sögn lögreglu skelfileg, sígarettustubbar og tól til lyfjanotkunar lágu um allt auk þess sem töluvert af verðmætum er horfið úr húsinu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert