Lögregla kölluð til vegna deilna um tölvunotkun

Síðdegis í gær voru lögreglumenn kallaðir að heimili á höfuðborgarsvæðinu eftir að það hafði kastast illilega í kekki milli móður og sonar, sem er á unglingsaldri. Að sögn lögreglu var móðirin ráðþrota vegna tölvunotkunar drengsins.

Málavextir voru á þá leið að strákurinn hugðist vera á MSN-spjallrásarforritun í heimilistölvunni. Móðir hans hafði hins vegar falið honum það hlutverk að taka leirtauið úr uppþvottavélinni. Þeim tókst ekki að ná samkomulagi um að forgangsraða hlutunum og svo fór að strákurinn missti stjórn á skapi sínu. Hann skemmdi eitthvað af húsgögnum á heimilinu og fór svo út í fússi.

Unglingurinn var því á bak og burt þegar lögreglumenn komu á vettvang en móðirin bað lögreglumenn um að hræða soninn, ef það væri til þess fallið að hann bætti ráð sitt. Til þess kom ekki enda er það tæpast hlutverk hennar, segir lögregla.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert