Verið að opna Vesturlandsveg við Mógilsá

mbl.is/Júlíus

Umferð ætti að komast í samt lag á Vesturlandsvegi við Mógilsá innan stundar. Búið er að losa rútuna sem þar lenti í óhappi snemma í morgun og er verið að ljúka við hreinsun. Umferð hefur farið í gegn í hollum meðan hreinsun hefur staðið yfir, en ekki hafa orðið miklar tafir vegna þess.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert