Íslendingar fá hótanir í tölvupósti

Ríkislögreglustjóri segir, að nokkuð hafi borið á því að undanförnu, að Íslendingar fái hótunarbréf í tölvupósti sem virðist vera frá leigumorðingja þar sem viðtakanda er hótað lífláti greiði viðkomandi ekki háa upphæð á bankareikning erlendis. Segir ríkislögreglustjóri að um sér að ræða nýja tegund ruslpósts sem kallast „hit man scam” eða „killer spam”.

Fram kemur á heimasíðu ríkislögreglustjóra, að þessi tegund tölvupósts sé ein tegund svindls, sem kennd sé við grein 419 en það er ákvæði í nígerískum hegningarlögum sem varðar fjársvik. Alríkislögreglan í Bandríkjunum FBI og New Scotland Yard í Bretlandi hafi fengið margar kvartanir frá fólki vegna þessara sendinga.

Kvörtunarmiðstöð netmála hjá FBI segir, að þessum póstum sé ekki beint gegn fyrirfram ákveðnum aðilum og ekki er vitað til þess, að fólk hafi tapað peningum eða að einhverjum hafi verið unnið mein.

Í tölvupóstinum kemur fram að greiði viðtakandi tiltekna upphæð inn á bankareikninga erlendis þá verði lífi hans þyrmt. Segir ríkislögreglustjóraembættið, að svikahrapparnir beiti ýmsum brögðum og sé nýleg aðferð þeirra að senda tölvupóst í nafni erlendra lögreglustofnana eins og FBI. Þar komi fram, að nafn viðtakenda hafi fundist í fórum handtekins leigumorðingja sem myrt hafi einstaklinga í Bandaríkjunum og Bretlandi sem hafi skorast undan að borga féð sem krafist var fyrir að þyrma lífi þeirra. Er viðtakandi beðinn um að svara tölvupóstinum til að hjálpa til við frekari rannsókn málsins.

Svikahrapparnir velja netföng af handahófi og eins og öðrum „Nígeríubréfum” á alls ekki að svara þessum. Ef slíkum pósti er svarað halda hótanirnar áfram.

Almenningi er bent á að leita til lögreglu ef honum berst póstur af þessu tagi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert