Flugfarþega varð mál í landganginum

Það er víðar en í höfuðborginni sem fólk er handtekið …
Það er víðar en í höfuðborginni sem fólk er handtekið fyrir að pissa á almannafæri. mbl.is/ÞÖK

Farþegi sem kom til landsins með flugi klukkan 22.30 í gærkvöldi kastaði af sér vatni í landganginum skömmu eftir að hann steig frá borði við Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Lögreglan var kölluð til og á lögregluvefnum kemur fram að farþeginn verður kærður fyrir athæfið.

Undanfarna daga hefur lögreglan á Suðurnesjum leitað að krökkum sem hafa stundað það á kvöldin að sprengja skotelda í Grindavík. Mikið hefur verið hringt í lögregluna vegna þessa og foreldrar beðnir að athuga hvort börn þeirra hafi vitneskju um þetta mál.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert