Talsverðar skemmdir vegna elds í íþróttahúsinu á Bolungarvík

Slökkviliðsmenn að störfum á þaki íþróttahússins.
Slökkviliðsmenn að störfum á þaki íþróttahússins. mbl.is/Halldór

Talsverðar skemmdir hafa orðið af völdum elds, reyks og vatns í íþróttahúsinu á Bolungarvík, en þar kom upp eldur á milli klæðninga nú á tólfta tímanum. Slökkviliðið hefur náð tökum á eldinum og er um það bil að ráða niðurlögum hans. Eldsupptök eru ókunn, en líklegt talið að þau megi rekja til rafmagns.

Vestfjarðameistaramótinu í sundi, sem vera átti í sundlaugargarðinum í Bolungarvík í dag, hefur verið frestað, en garðurinn er áfastur íþróttahúsinu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert