Samtök hernaðarandstæðinga mótmæla NATO fundi á Íslandi

Samtök hernaðarandstæðinga mótmæla því að til standi að halda þingmannafund NATO hér á landi um komandi helgi. Íslendingar eru herlaus og friðelskandi þjóð, sem ekki á að taka að sér gestgjafahlutverk fyrir slíkar samkomur.Þetta kemur fram í ályktun frá samtökunum.

„Að þessu tilefni vilja SHA minna á eftirfarandi staðreyndir um hlutverk og eðli NATO:

NATO er hernaðarbandalag sem hefur yfir að ráða gríðarlegum hernaðarmætti. NATO hefur ekki útilokað beitingu kjarnorkuvopna að fyrra bragði.

NATO hefur tekið þátt í árásarstríðum, s.s. á Balkanskaga. Um þessar mundir tekur bandalagið virkan þátt í hernámi Afganistan og hefur með aðgerðum sínum leitt til dauða fjölda saklausra borgara.

Aðildarríki NATO eru ásamt Rússlandi langstærstu vopnaframleiðslulönd í heimi. Með vopnasölu sinni til stríðshrjáðra svæða bera þau ábyrgð á þjáningum fólks um víða veröld,

NATO og einstök NATO-ríki hafa staðið gegn gerð og samþykkt fjölmargra afvopnunarsamninga á liðnum árum og áratugum, þar á meðal á sviði kjarnorkuafvopnunar.

það er innbyggt í skipulag NATO að Bandaríkjamenn hafi með höndum hernaðarlega stjórn þess. Bandaríkjastjórn hefur ítrekað notað NATO sem verkfæri eftir innrásir sínar, bæði í Afganistan og í Írak, undir yfirskini friðargæslu eða uppbyggingarstarfs.

Ein af röksemdum Halldórs Ásgrímssonar, þáverandi utanríkisráðherra, gegn tillögum um friðlýsingu Íslands fyrir kjarnorkuvopnum árið 2004 var að það samrýmdist ekki skuldbindingum Íslands gagnvart NATO.

Hinar umdeildu áætlanir Bandaríkjanna um gagneldflaugakerfi eru gerðar með fullu samþykki NATO og eru í raun liður í áætlunum NATO. Þessar áætlanir eru taldar spilla mjög fyrir viðleitni til afvopnunar.

Einstök aðildarríki NATO bera höfuðábyrgð á stríðinu í Írak sem kostað hefur hundruð þúsunda Íraka lífið og hrakið milljónir á flótta.

Um leið og Samtök hernaðarandstæðinga mótmæla fundarhöldum þessum, hvetja þau íslensk stjórnvöld til að taka upp sjálfstæða og friðsama utanríkisstefnu. Úrsögn úr NATO er rökrétt fyrsta skref í þá átt," samkvæmt ályktun Samtaka hernaðarandstæðinga.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF LÍF

Rætt um að kaupa notaðar þyrlur

13:50 Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra kynnti í ríkisstjórn í morgun hugmyndir um að kaupa tvær notaðar björgunarþyrlur sambærilegum þeim sem Landhelgisgæslan er nú með í notkun. Þessi kostur er ódýrari en að kaupa nýjar þyrlur. Meira »
Frá fundi fjárlaganefndar Alþingis.

Sjálfstæðismenn ósammála um göngin

13:26 Sjálfstæðismenn í fjárlaganefnd klofnuðu í afstöðu til frumvarps um jarðgöng undir Vaðlaheiðargöng. Ásbjörn Óttarsson og Illugi Gunnarsson leggjast gegn frumvarpinu en Kristján Þór Júlíusson styður það. Meira »

Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna

Í ár tóku 250 bekkir víðsvegar um landið þátt í samkeppninni.
13:19 Úrslit í samkeppninni Tóbakslaus bekkur liggja fyrir en alls fá bekkir frá níu skólum á landinu verðlaun. Keppnin var haldin meðal meðal 7. og 8. bekkja í grunnskólum landsins. Meira »

„Hvatning til okkar beggja“

Forsetahjónin Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff.
12:12 „Þetta er ánægjuleg staðfesting á því sem við Dorrit höfum fundið á fundum, vinnustöðum og á viðræðum við fólk undanfarið,“ segir Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, um nýja skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2 þar sem hann mældist með 53,9% fylgi. Meira »

Fengu 9,8 í meðaleinkunn

Nýstúdentar frá Fjölbrautarskólanum í Garðabæ
11:49 Tveir nýstúdentar frá Fjölbrautaskólanum í Garðabæ, Katrín Ásta Ingimarsdóttir og Sæþór Pétur Kjartansson, fengu 9,8 í meðaleinkunn í námi sínu. Meira »

Hjólin fá að snúast að nýju myndskeið

Hjol
12:23 Í dag hófst formlega hjólasöfnun Barnaheilla og flugfélagsins WOW þar sem landsmenn geta gefið gömul hjól með því að koma þeim á Sorpu en Mæðrastyrksnefnd mun sjá dreifingu hjólanna. Hjólin mega vera biluð því sérfræðingar munu lagfæra og gera við þau. Nemendur í Álfhólsskóla gáfu ónýtt hjól í dag. Meira »

Flaggað í hálfa stöng í Súðavík

Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
11:51 Óvanaleg sjón blasti við íbúum Súðavíkur í morgun, en þá hafði einn íbúi bæjarins brugðið á það ráð að flagga fána Landsbankans öfugt, og í hálfa stöng. Meira »

Geir í nýtt starf

Geir H. Haarde
11:43 Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, hefur gengið til liðs við OPUS lögmenn sem ráðgjafi í alþjóðlegum verkefnum.  Meira »

Mikið um reiðhjólaþjófnað

Mynd úr safni
11:39 Þjófnuðum á reiðhjólum hefur fjölgað umtalsvert í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum undanfarna daga.   Meira »

Tekinn á 134 km hraða

11:36 Ellefu ökumenn hafa verið staðnir að hraðakstursbrotum í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á undanförnum dögum. Sá sem hraðast ók var á 134 km hraða á Reykjanesbrautinni. Meira »

Ölvaður og réttindalaus

11:37 Ölvaður ökumaður, karlmaður á fertugsaldri, velti bifreið á Reykjanesbraut í fyrrinótt. Hann missti stjórn á bílnum sem hafnaði utan vegar milli akreina. Einn farþegi var í bílnum og sluppu báðir ómeiddir. Meira »

Ástþór losnar ekki við fyrirvara

Ástþór Magnússon og eiginkona hans Natalía Wiium.
11:34 „Ég veit ekki hversu margar þær eru en hann er búinn að skila viðbót núna,“ segir Katrín Theodórsdóttir, annar oddviti yfirkjörstjórna Reykjavíkurkjördæma norður og suður, aðspurð hvort hún geti staðfest að Ástþór Magnússon hafi skilað tæplega 200 viðbótarundirskriftum í morgun. Meira »

Annað innbrotið á innan við viku

Mynd úr safni
11:29 Lögreglunni á Suðurnesjum barst í morgun tilkynning þess efnis að brotist hefði verið inn í fyrirtæki hjá Grófinni í Keflavík og þaðan stolið skrifstofubúnaði. Er þetta annað innbrotið í fyrirtækið í vikunni. Meira »

Kirkjugarðar geta varla starfað áfram

11:20 Kirkjugarðar geta ekki starfað áfram nema einingarverðið á hvern grafreit verði uppfært eins og það á að vera án allrar skerðingar,“ segir Þórsteinn Ragnarsson, formaður Kirkjugarðasambands Íslands (KGSÍ) og forstjóri Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma. Meira »

„Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra.
11:18 „Ég er að segja að hann sé að segja ósatt um það að ég gangi hér á eftir þingmönnum og segi þeim hvernig þeir eigi að greiða atkvæði. Auðvitað gera þeir það sjálfir eins og þeir vilja. Ég hef ekki beitt mér á einn eða annan hátt í þessu máli,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir á Alþingi í dag. Meira »

Með loftbyssu í farangrinum

Mynd úr safni
11:26 Lögreglunni á Suðurnesjum var í fyrradag gert viðvart um að karlmaður væri með loftbyssu og skotfæri í fórum sínum í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Höfðu munirnir komið fram við skimun öryggisgæslu á farangri mannsins. Meira »

Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér

Nýsköpunarsjóði er ætlað að vera virkur fjárfestir í nýjum sprotafyrirtækjum.
11:19 Nýsköpunarsjóður er í þröngri stöðu og getur ekki beitt sér sem skyldi sem virkur fjárfestir í nýjum sprotafyrirtækjum. Þetta sagði Kristján Skarphéðinsson ráðuneytisstjóri í iðnaðarráðuneytinu á ársfundi sjóðsins. Meira »

Aðeins sakfelldir fyrir sterana

Lögmenn í Straumsvíkurmálinu.
11:05 Sævar Sverrisson og Geir Hlöðver Ericsson eru báðir sakfelldir í Straumsvíkurmálinu svonefnda fyrir innflutning á sterum. Dómurinn taldi hins vegar ekki sannað að Geir Hlöðver hafi staðið að innflutningi fíkniefnanna sem voru í sama gámi og sterarnir. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Til leigu 2-4 m sumarhús í Hvalfirði
Vel búin, gasgrill og heitur pottur. Frábært útsýni. Fjölbreytt afþreying í nágr...
Hyundai Sonata 2008 sjálfskiptur til sölu ekinn 77.000 km.
Svartur glæsilegur Hyundai Sonata árg. 2008, sjálfsk. til sölu. Dekurbíll, vel v...
Opnaðu hliðið með símanum
Með einföldum búnaði er hægt að opna hlið og bílskúrshurðir með gsm síma. Hægt e...
Starcraft Fellihýsi með fortjaldi
Til sölu Starccraft Fellihýsi 9 ft árg 2000 ásamt nýlegu forjaldi ásett verð 69...
 
Til sölu m-bens e-200

Til sölu M-BENS E-200 Árgerð...
Sýslumaðurinn á selfosi - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Akstur fyrir strætó

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...
Framhald uppboðs
Nauðungarsala
Uppboð Einnig birt á www.naud...