ÖBÍ fagnar stefnu stjórnvalda um umbætur í velferðarkerfinu

Aðalfundur Öryrkjabandalags Íslands fagnar yfirlýstri stefnu stjórnvalda um umbætur í velferðarkerfinu, þar sem áhersla skal lögð á einföldun almannatryggingakerfisins, einstaklingsmiðaða þjónustu, aukna endurhæfingu og virka samfélagslega þátttöku fatlaðra, þetta kemur fram í ályktun sem far samþykkt nú fyrir stundu.

ÖBÍ leggur áherslu á að skipulagt verði eitt nýtt og betra almannatryggingakerfi fyrir alla landsmenn. ÖBÍ hafnar alfarið hugmyndum sem fulltrúar Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins hafa kynnt um sérstakt tryggingakerfi fyrir hluta landsmanna. Jafnframt varar ÖBÍ mjög við hugmyndum sem miða að einkavæðingu almannatrygginga, sem er augljós ávísun á mismunun.

Fram kemur að undanfarin ár hafi skattar á fyrirtæki og á hæstu laun lækkað umtalsvert. Nú sé tími lágtekjufólks kominn. ÖBÍ skorar á stjórnvöld að gera tillögur ÖBÍ um kjara-, skatta- og velferðarmál að sínum. ÖBÍ skorar ennfremur á Alþýðusamband Íslands og Samtök atvinnulífsins að koma í veg fyrir boðað afnám og niðurfellingu örorkulífeyris fyrir á annað þúsund öryrkja.

Komi skerðing lífeyrissjóðanna til framkvæmda sé ljóst að sjóðirnir hafa brugðist samtryggingarskyldum sínum og samfélagslegri ábyrgð. Þar með kynnu forsendur skylduaðildar að lífeyrissjóðunum að vera brostnar. Slíkar aðstæður hlytu að leiða til heildarendurskoðunar stjórnvalda á lögum um starfsemi lífeyrissjóðanna, þar sem hlutverk þeirra, skyldur og ábyrgð í íslensku samfélagi yrðu endurskilgreind.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert