Þráinn Freyr valinn matreiðslumaður ársins

Þráinn Freyr Vigfússon, matreiðslumaður ársins 2007.
Þráinn Freyr Vigfússon, matreiðslumaður ársins 2007. mbl.is/Jón Svavarsson

Þráinn Freyr Vigfússon, sem starfar á Grillinu á Hótel Sögu, hlaut titilinn matreiðslumaður ársins, en úrslitakeppnin um þann titil fór fram í Verkmenntaskólanum á Akureyri í dag. Þar stendur nú yfir matvælasýningin Matur-inn 2007 en þar sýna framleiðendur á Norðurlandi afurðir sínar.

Fimm matreiðslumenn kepptu til úrslita, þeir Ari Freyr Valdimarsson, Grillinu, Eyjólfur Gestur Ingólfsson, Iðusölum, Þórarinn Eggertsson, Múlakaffi, Þráinn Freyr Vigfússon, Grillinu og Ægir Friðriksson, Grillinu.

Keppnisfyrirkomulag var svokölluð Óræða karfan en þá fá keppendur í hendur hráefni við upphaf keppninnar og þeir þurfa síðan að gera sitt besta úr því.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert