Braut flösku framan við lögreglubíl

Ölvaður maður tók upp á því á aðfararnótt sunnudagsins, að mölva glerflösku með því að kasta henni í götu fyrir framan lögreglubíl á Akranesi. Maðurinn var umsvifalaust færður á lögreglustöð og má búast við refsingu fyrir brot á lögreglusamþykkt.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert