Geir ræddi við Prodi og páfann í Róm

Benedikt páfi blaðar í Biblíu sem Geir H. Haarde færði …
Benedikt páfi blaðar í Biblíu sem Geir H. Haarde færði honum. AP

Geir H. Haarde, forsætisráðherra, er í Róm á Ítalíu og átti í morgun fundi með Romano Prodi, forsætisráðherra Ítalíu, og Benedikt XVI páfa. Geir ræddi m.a. um loftslags- og orkumál og þróunarsamvinnu við páfa og færði honum að gjöf nýútgefna þýðingu á Biblíunni með áritun biskups Íslands, auk íslensks þríkross úr gulli.

Á fundi Geirs og Prodis var rætt um samskipti Íslands og Ítalíu, málefni Sameinuðu þjóðanna og svæðisbundin mál. Forsætisráðherrarnir ræddu m.a. um fullgildingu tvísköttunarsamnings Íslands og Ítalíu, hugsanlega stofnun ítalsks sendiráðs í Reykjavík, ákvörðun íslenskra stjórnvalda um stuðning við íslenskukennslu við háskólann í Róm og framboð ríkjanna til ýmissa stofnana og verkefna, þ.á m. framboð Íslands til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Lýsti Geir sérstakri ánægju með stuðning Ítalíu. Þá þakkaði Geir fyrir stuðning Ítalíu við samþykkt Atlantshafsbandalagsins um tilhögun lofthelgiseftirlits á Íslandi og óskaði eftir frekara samstarfi við framkvæmd þess.

Fram kemur í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu, að þeir Geir og Prodi hafi verið sammála um brýna nauðsyn umbóta innan samtakanna, einkum í skipan og hlutverki öryggisráðsins, og staðfestu sameiginlegan flutning á ályktunartillögu í allsherjarþinginu um stöðvun dauðarefsinga.

Þá ræddu þeir um svæðisbundin mál snérust aðallega um þróunina innan Evrópusambandsins í kjölfar nýlegs leiðtogafundar í Lissabon og um ástand og horfur í Afganistan og Kosovo.

Geir átti einnig fund með Tarcisio Bertone, kardínála og forsætisráðherra Páfagarðs.

Geir H. Haarde og Romano Prodi á skrifstofu Prodis í …
Geir H. Haarde og Romano Prodi á skrifstofu Prodis í Palazzo Chigi í morgun. AP
Geir H. Haarde og Inga Jóna Þórðardóttir ásamt Benedikt páfa …
Geir H. Haarde og Inga Jóna Þórðardóttir ásamt Benedikt páfa í Páfagarði í morgun. AP
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert