Úti að aka undir áhrifum áfengis og fíkniefna

mbl.is/Júlíus

Tveir ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Annar þeirra, karl á þrítugsaldri, var stöðvaður í Grafarvogi en hinn, 18 ára piltur, var stöðvaður í Kópavogi. Sá yngri hefur aldrei öðlast ökuréttindi en með honum í bílnum voru sex farþegar, sem allir voru í annarlegu ástandi.

Þá voru tveir ökumenn teknir fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna í gærkvöld. Fyrst var kona um tvítugt stöðvuð fyrir þær sakir í Breiðholti og síðan var tæplega þrítugur karl stöðvaður af sömu ástæðu í Hafnarfirði. Í bíl hans fundust ætluð fíkniefni en ökumaðurinn og farþegi hans, karl á líkum aldri, voru báðir færðir á lögreglustöð en sá síðartaldi reyndist jafnframt vera eftirlýstur fyrir aðrar sakir, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.

För tveggja ökumanna til viðbótar var stöðvuð í Breiðholti í gærkvöld og nótt en báðir voru réttindalausir. Annar þeirra, karl um þrítugt, hafði þegar verið sviptur ökuleyfi en hinn, 16 ára piltur, hefur skiljanlega aldrei öðlast ökuréttindi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert