Fjöldamargir yfirheyrðir vegna nauðgunarkæru á Selfossi

Lögreglan á Selfossi hefur yfirheyrt fjölmarga vegna nauðgunarmáls á Selfossi. Stúlka kærði nauðgun til lögreglunnar aðfaranótt laugardags. Þrír karlmenn voru handteknir í heimahúsi stuttu síðar og voru í gær úrskurðaðir í gæsluvarðhald til fimmtudags. Að minnsta kosti sex aðrir hafa verið yfirheyrðir sem vitni í málinu, samkvæmt frétt á vefnum sudurland.is.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert