Köstuðu snjóboltum í bíla

Lögreglan á Hvolsvelli segir, að mikið hafi verið kvartað undan ungmennum á Hellu sem hafi gert það að leik sínum að kasta snjóboltum í bifreiðar sem ekið hafa verið yfir Ytri-Rangá. Segir lögreglan, að um sé að ræða mjög hættulegan leik þar sem hætt er við því að ökumenn missi stjórn á bifreiðum sínum við að fá snjóbolta í bifreiðarnar.

Lögreglumenn höfðu hendur í hári ungmenna, sem höfðu verið á staðnum. Segir lögreglan að vonandi verði það til þess að þessi leikur verði ekki endurtekinn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert