Forseti Íslands ræddi áhrif loftlagsbreytinga á orkubúskap heimsins

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands. mbl.is/Ómar

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, flutti í dag fyrirlestur á ársþingi bandarísku samtakanna um jarðvegsvísindi (Soil Science Society of America) og fleiri samtaka en þingið er haldið í New Orleans. Það sækja um 3.000 vísindamenn og sérfræðingar, einkum frá Bandaríkjunum.

Fram kemur í tilkynningu frá skrifstofu forseta að fyrirlesturinn hafi verið tekinn upp fyrir nokkrum dögum og fluttur á skjávarpa. Að fyrirlestri loknum svaraði Ólafur Ragnar fyrirspurnum ráðstefnugesta símleiðis.

Í fyrirlestrinum fjallaði Ólafur Ragnar um hvernig hættan á loftslagsbreytingum kallaði á breytingar í orkubúskap heimsbyggðar og ný viðhorf varðandi landgræðslu og baráttu gegn eyðingu landgæða. Hann nefndi fjölmörg dæmi úr reynslu Íslendinga við að þróa nýtingu hreinnar orku, einkum á sviði jarðhita og við að ná árangri í markvissri landgræðslu, en stærsta eyðimörk Evrópu er á Íslandi og þjóðin hefur í hundrað ár stundað skipulagða landgræðslu.

Hann lagði áherslu á hvernig þessi reynsla gæti nýst öðrum löndum og rakti í lok erindisins helstu atriði í aðgerðaáætlun sem hann kynnti fyrst í fyrirlestri sem haldinn var á alþjóðlegu þingi á Selfossi í september þegar fagnað var hundrað ára afmæli Landgræðslu ríkisins.

Hægt verður að horfa á fyrirlestur Ólafs Ragnarsí New Orleans á heimasíðu forsetaembættisins, forseti.is, síðar í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert