Lögregluaðgerðum vegna komu Vítisengla til landsins lokið

Aðgerð lögregluyfirvalda vegna komu norrænna félaga í vélhjólasamtökunum Hell’s Angels (Vítisengla) til landsins er lokið. Aðgerðin var mjög viðamikil og gangur hennar allur samkvæmt áætlun, segir í tilkynningu frá ríkislögreglustjóra.

Í tilkynningunni segir að átta norrænum félögum í samtökunum hafi verið synjað um leyfi til landgöngu á föstudag á grundvelli c liðar 42 gr. útlendingalaga nr. 96, 2002. Norrænu félagarnir veittu enga mótspyrnu er för þeirra var stöðvuð. Mennirnir héldu allir til Ósló á laugardag í fylgd íslenskra lögregluþjóna.

Aðgerð lögregluyfirvalda var ákveðin í kjölfar þess að greiningardeild embættis ríkislögreglustjóra bárust upplýsingar erlendis frá þess efnis að fjölda félaga í Hell’s Angels hefði verið stefnt til landsins í því skyni að fagna 11 ára afmæli íslenska vélhjólaklúbbsins Fáfnis. Þá segir að Hell’s Angels haldi uppi skipulagðri glæpastarfsemi víða um heim og margir félagar í samtökunum hafi hlotið refsidóma fyrir alvarlega glæpi.

Fram kemur í tilkynningunni að allt frá 2002 er félagar í Hell’s Angels reyndu fyrst að komast inn í landið hafi þeirri stefnu verið fylgt á Íslandi að neita beri félögum í vélhjólasamtökum, sem vitað er að halda uppi skipulagðri glæpastarfsemi, um leyfi til landgöngu. Viðbrögð lögreglu hafi nú sem fyrr verið ákveðin á grundvelli fyrirliggjandi upplýsinga og því mati að koma félaga í Hell’s Angels til Íslands og viðleitni samtakanna til að ná fótfestu hér á landi fæli í sér alvarlega ógn við samfélag og allsherjarreglu.

Embætti ríkislögreglustjóra hafði yfirstjórn aðgerðarinnar. Framkvæmd hennar var í höndum lögreglunnar á Suðurnesjum auk þess sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og starfsmenn embættis ríkislögreglustjóra tóku einnig þátt í henni. Samstarf þessara aðila, sem var náið og umfangsmikið, gekk afar vel fyrir sig og skilaði tilætluðum árangri, segir í tilkynningu. Sömu sögu sé að segja um samstarf við aðila erlendis, sem leitað var til vegna aðgerðarinnar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert