Íslenskur hönnuður beðinn að stela danskri glæpapeysu

Védís Jónsdóttir hönnuður var beðin að hanna peysu sem líktist flík sem danska leikkonan Sofie Gråbøl í dönsku glæpaþáttaröðinni Forbrydelsen en Védís neitar að stæla hönnun annarra.

Rannsóknarlögreglukonan Lund sem Gråbøl leikur er oft í sérstakri ullarpeysu í þáttunum og hefur hún í raun komið af stað tískubylgju þar í landi og nýtur peysan mikilla vinsælda bæði í Danmörku og Noregi.

Í dönskum fjölmiðlum er peysan gjarnan kölluð íslensk lopapeysa en peysan var í raun hönnuð af færeysku hönnunarteymi, Guðrún og Guðrún.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert