Hvalaskoðunarfyrirtæki fékk nýsköpunarverðlaun

Hvalaskoðun á Húsavík.
Hvalaskoðun á Húsavík. mbl.is/þorgeir Baldursson

Nýsköpunarverðlaun Samtaka ferðaþjónustunnar 2007 voru afhent við athöfn á Hilton Reykjavík Nordica í dag. Hvalaskoðunarfyrirtækið Norðursigling, Húsavík hlaut verðlaunin að þessu sinni en í fréttatilkynningu frá SAF segir að Norðursigling hafi með sterkri stjórn, skýrri sýn og fórnfúsu starfi stuðlað að uppbyggingu ferðaþjónustu á landsbyggðinni á eftirbreytniverðan hátt.

Í rökstuðningi dómnefndarinnar segir að Norðursigling, sem nú hefur starfað í 13 sumur, hafi frá upphafi staðið fyrir samfelldri nýsköpun og vöruþróun í þeirri viðleitni fyrirtækisins að gera hvalaskoðun að eftirsóknarverðri afþreyingu á Íslandi.

Kristján Möller, samgönguráðherra afhendir Herði Sigurbjarnarsyni, framkvæmdastjóra Norðursiglingarn nýsköpunarverðlaun SAF …
Kristján Möller, samgönguráðherra afhendir Herði Sigurbjarnarsyni, framkvæmdastjóra Norðursiglingarn nýsköpunarverðlaun SAF 2007. Milli þeirra Jón Baldur Þorbjörnsson, eigandi ferðaskrifstofunnar Ísafold og Erna Hauksdóttir framkvæmdastjóri SAF. mbl.is/
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert