Landi gerður upptækur í Þorlákshöfn

Í gærkvöldi var gerð húsleit í íbúðarhúsi í Þorlákshöfn vegna gruns um að þar færi fram landaframleiðsla. Við leitina fundust um 140 lítrar af tilbúnum landa sem reyndist við frumprófun vera um 44 % að styrkleika. Til viðbótar þessu fundust um 75 lítrar af gambra og svo tæki til framleiðslunnar. Allt var þetta haldlagt.

Það voru lögreglumenn í almennri deild lögreglunnar á Selfossi sem höfðu frumkvæði að undirbúningi og framkvæmd málsins. Einn maður var handtekinn í tengslum við málið og var hann færður í fangageymslu. Hann verður yfirheyrður í dag þegar náðst hefur í túlk. Þetta er eitt mesta magn af tilbúnum landa sem lögreglan á Selfossi hefur gert upptækt í einni húsleit, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka