Atvinnuleysi 0,8% í október

Steinunn Ásmundsdóttir

Skráð atvinnuleysi í október 2007 var 0,8%, eða það sama og í september s.l. Að meðaltali voru 1.315 manns á atvinnuleysisskrá, sem er 21 færri en í september. Atvinnuleysi er um 20% minna en á sama tíma fyrir ári þegar það var 1,0%.

Á vef Vinnumálastofnunar kemur fram að fjöldi þeirra sem hafa verið á skrá í innan við 3 mánuði fór úr 772 í september í 754 í október. Þeim sem verið hafa á skrá lengur en 6 mánuði fækkaði úr 507 í september í 476 í október. Gefin voru út 49 ný atvinnuleyfi í október til íbúa utan hins Evrópska efnahagssvæðis. Nýskráningar ríkisborgara frá nýju ríkjum ESB voru 923 og þeir sem voru áður með leyfi voru 452 eða samtals 1.375.

Spá litlu breytingum á atvinnuástandi í nóvember

„Atvinnuleysið versnar yfirleitt milli október og nóvember. Í fyrra jókst atvinnuleysið um 6% milli þessara mánaða og var 1,1% í nóvember, en 1% í október. Lausum störfum í lok október 2007 fækkaði frá því í lok september en alls voru 296 laus störf í lok október, en 381 í lok september. Hins vegar voru 438 laus störf í lok október 2006. Atvinnulausum í lok október fækkaði frá lokum september um 55. Þegar allt er talið, er líklegt að atvinnuleysið í nóvember muni lítið breytast eða aukast lítillega og verða á bilinu 0,8%-1,1%," samkvæmt vef Vinnumálastofnunar.

Atvinnuleysi 0,6% á höfuðborgarsvæðinu

Atvinnuleysi á höfuðborgarsvæðinu er nú 0,6% af áætluðum mannafla og 1,1% á landsbyggðinni. Á landsbyggðinni er atvinnuleysið mest 2,1% á Suðurnesjum, en minnst er atvinnuleysið á Norðurlandi vestra og Austurlandi 0,4%. Atvinnuleysi karla minnkaði um 1,8% milli mánaða og atvinnuleysi kvenna um 1,5%.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert