Rannsókn hafin á kynþáttanetsíðu

Lögreglurannsókn er hafin á heimasíðunni skapari.com þar sem rekinn er áróður fyrir kynþáttastefnu og vegið að æru nafngreinds fólks. Íslensku forsetahjónin eru meðal þeirra sem síðuhaldari ræðst á með grófum hætti.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk nýlega tilkynningu um síðuna og hóf þá rannsókn. Á umræddri síðu er hakakross nasista birtur ítrekað og honum skeytt inn á mynd af íslenska þjóðfánanum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert