Búist við stormi fram á nótt

mbl.is/Hafþór

Þessir ungu drengir á Húsavík létu hvorki stífa norðanátt né ofankomu ásamt skafrenningi aftra sér frá því að fara út og renna sér á sleða í dag. "Þetta er bara gaman, skemmtilegt í svona veðri" sögðu þeir Hinrik Marel Jónasson, Kristján Orri Unnsteinsson og Hafþór Helgi Þórisson og létu sig gossa fram af brekkubrúninni.

Veðurstofan varar við stormi á Norðaustur- og Austurlandi, og Miðhálendinu, fram á nótt. Á morgun mun aftur á móti skína sól á Húsvíkinga sem og alla aðra landsmenn, gangi veðurspáin eftir.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert