Bátur vélarvana við Geldingarnes

Bátur varð vélarvana rétt undan Geldingarnesi nú á fjórða tímanum. Að sögn Vaktstöðvar siglinga hefur báturinn verið tekinn í tog. Um óskráðan skemmtibát er að ræða og voru þrír einstaklingar í honum. Menn óttuðust í fyrstu að bátinn myndi reka á land en betur fór en á horfðist.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert