Margrét Pála hlaut Barnamenningarverðlaun

Margrét Pála Ólafsdóttir. stækka

Margrét Pála Ólafsdóttir. mbl.is/Kristinn

Margrét Pála Ólafsdóttir, skólastjóri og höfundur Hjallastefnunnar, hlaut Barnamenningarverðlaun Velferðarsjóðs barna árið 2007. 

Verðlaunin hlaut Margrét Pála fyrir óbilandi trú á að gera megi betur í uppeldis- og skólamálum, fyrir að hrinda hugsjónum sínum í verk með Hjallastefnunni og fyrir þau mannbætandi áhrif sem hún hefur haft á íslenskt skólastarf.

Verðlaunafé Barnamenningarverðlaunanna nemur 2 milljónum króna.  

Kári Stefánsson, stofnandi Velferðarsjóðs barna, afhenti Margréti Pálu Ólafsdóttur verðlaunin við athöfn í Iðnó í morgun. Að auki afhenti Kári henni silfurgrip sem ber heitið „Börn að vaxa úr grasi“ eftir gullsmiðina Dýrfinnu Torfadóttur og Finn Þórðarson.

Barnakór Kársnesskóla söng við athöfnina og Guðni Ágústsson alþingismaður las upp kafla um bernskujól úr nýútkominni ævisögu sinni. 

 Úthlutað til fjögurra verkefna  

Við sama tækifæri var úthlutað 6,2 milljónum króna úr Velferðarsjóði barna til fjögurra verkefna sem ætlað er að bæta hag barna hér á landi.

Gauraflokkurinn hlaut 2 milljónir króna og hefur áður hlotið 1,5 milljónir króna úr Velferðarsjóði barna. Um er að ræða uppbyggingarstarf fyrir 10-12 ára drengi sem eru ofvirkir eða með skyldar hegðunarraskanir. Starfið með þeim fer fram í Vatnaskógi og síðastliðið sumar tóku 50 drengir þátt. Verkefnið hefur tekist afar vel og var ákveðið að styðja það áfram.

Markmið þess er að auka sjálfstraust drengjanna og hafa uppbyggileg áhrif á sjálfsmynd þeirra. Ábyrgðarmenn verkefnisins eru Bóas Valþórsson sálfræðingur og Barna- og unglingageðdeild Landspítala og sér Sigurður Grétar Sigurðsson, sóknarprestur á Hvammstanga. 

Laugarneskirkja og samstarfsaðilar hennar hlaut 1 milljón króna. Annars vegar til verkefnisins Adrenalín gegn rasisma, sem er 8 ára gamalt samstarfsverkefni Laugarneskirkju, Laugalækjarskóla og nýbúadeildar Austurbæjarskóla. Þar koma 9. og 10. bekkingar saman í því augnamiði að eignast nýja vini af ólíku þjóðerni. Umsjón með starfinu hafa sr. Hildur Eir Bolladóttir og Stella Rún Steinþórsdóttir. 

Hins vegar er Harðjaxlar, sem er nýtt verkefni í samvinnu Laugarneskirkju og Landhelgisgæslunnar, þar sem 7. bekkingar úr Laugalækjarskóla mæla sér mót við fatlaða jafnaldra sína. Uppeldismarkmið Harðjaxla er að að börnin efli með sér félagslega og tilfinningalega færni sem yfirstígur þá þröskulda sem gjarnan aðgreinir fatlaða og ófatlaða í samfélagi okkar.

Móttakan í Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins í Kópavogi hlaut 1,2 milljónir króna til að endurbæta móttökuna og gera hana hlýlegri og meira aðlaðandi fyrir börn og foreldra. Sett verður upp fiskabúr, leikföngum verður fjölgað, veggir málaðir og húsgögn endurnýjuð, jafnt fyrir litla sem stóra búka.

Blátt áfram – björt framtíð hlaut 2 milljónir króna til að halda úti fræðslu fyrir skólastarfsfólk um hvernig greina megi kynferðislegt ofbeldi gegn börnum og bregðast við því. Námskeið eru haldin í leikskólum og grunnskólum. Félagasamtökin Blátt áfram eiga frumkvæðið að þessu verkefni og stýra því.

 


  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Flaggað í hálfa stöng í Súðavík

Flaggað í hálfa stöng í Súðavík

11:51 Óvanaleg sjón blasti við íbúum Súðavíkur í morgun, en þá hafði einn íbúi bæjarins brugðið á það ráð að flagga fána Landsbankans öfugt, og í hálfa stöng. Meira »
Nýstúdentar frá Fjölbrautarskólanum í Garðabæ

Fengu 9,8 í meðaleinkunn

11:49 Tveir nýstúdentar frá Fjölbrautaskólanum í Garðabæ, Katrín Ásta Ingimarsdóttir og Sæþór Pétur Kjartansson, fengu 9,8 í meðaleinkunn í námi sínu. Meira »

„Hvatning til okkar beggja“

Forsetahjónin Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff.
12:12 „Þetta er ánægjuleg staðfesting á því sem við Dorrit höfum fundið á fundum, vinnustöðum og á viðræðum við fólk undanfarið,“ segir Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, um nýja skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2 þar sem hann mældist með 53,9% fylgi. Meira »

Mikið um reiðhjólaþjófnað

Mynd úr safni
11:39 Þjófnuðum á reiðhjólum hefur fjölgað umtalsvert í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum undanfarna daga.   Meira »

Tekinn á 134 km hraða

11:36 Ellefu ökumenn hafa verið staðnir að hraðakstursbrotum í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á undanförnum dögum. Sá sem hraðast ók var á 134 km hraða á Reykjanesbrautinni. Meira »

Geir í nýtt starf

Geir H. Haarde
11:43 Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, hefur gengið til liðs við OPUS lögmenn sem ráðgjafi í alþjóðlegum verkefnum.  Meira »

Ölvaður og réttindalaus

11:37 Ölvaður ökumaður, karlmaður á fertugsaldri, velti bifreið á Reykjanesbraut í fyrrinótt. Hann missti stjórn á bílnum sem hafnaði utan vegar milli akreina. Einn farþegi var í bílnum og sluppu báðir ómeiddir. Meira »

Ástþór losnar ekki við fyrirvara

Ástþór Magnússon og eiginkona hans Natalía Wiium.
11:34 „Ég veit ekki hversu margar þær eru en hann er búinn að skila viðbót núna,“ segir Katrín Theodórsdóttir, annar oddviti yfirkjörstjórna Reykjavíkurkjördæma norður og suður, aðspurð hvort hún geti staðfest að Ástþór Magnússon hafi skilað tæplega 200 viðbótarundirskriftum í morgun. Meira »

Annað innbrotið á innan við viku

Mynd úr safni
11:29 Lögreglunni á Suðurnesjum barst í morgun tilkynning þess efnis að brotist hefði verið inn í fyrirtæki hjá Grófinni í Keflavík og þaðan stolið skrifstofubúnaði. Er þetta annað innbrotið í fyrirtækið í vikunni. Meira »

Kirkjugarðar geta varla starfað áfram

11:20 Kirkjugarðar geta ekki starfað áfram nema einingarverðið á hvern grafreit verði uppfært eins og það á að vera án allrar skerðingar,“ segir Þórsteinn Ragnarsson, formaður Kirkjugarðasambands Íslands (KGSÍ) og forstjóri Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma. Meira »

Með loftbyssu í farangrinum

Mynd úr safni
11:26 Lögreglunni á Suðurnesjum var í fyrradag gert viðvart um að karlmaður væri með loftbyssu og skotfæri í fórum sínum í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Höfðu munirnir komið fram við skimun öryggisgæslu á farangri mannsins. Meira »

Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér

Nýsköpunarsjóði er ætlað að vera virkur fjárfestir í nýjum sprotafyrirtækjum.
11:19 Nýsköpunarsjóður er í þröngri stöðu og getur ekki beitt sér sem skyldi sem virkur fjárfestir í nýjum sprotafyrirtækjum. Þetta sagði Kristján Skarphéðinsson ráðuneytisstjóri í iðnaðarráðuneytinu á ársfundi sjóðsins. Meira »

„Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra.
11:18 „Ég er að segja að hann sé að segja ósatt um það að ég gangi hér á eftir þingmönnum og segi þeim hvernig þeir eigi að greiða atkvæði. Auðvitað gera þeir það sjálfir eins og þeir vilja. Ég hef ekki beitt mér á einn eða annan hátt í þessu máli,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir á Alþingi í dag. Meira »

Skoða leiðir um afnám hafta með ESB

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra.
10:51 Forsætisráðherra segir að stjórnvöld séu að skoða leiðir til að flýta afnámi gjaldeyrishaftanna í samstarfi við ESB. Jóhanna Sigurðardóttir ræddi málið við Stefan Füle, stækkunarstjóra ESB, í gær og segist hafa fengið jákvæð viðbrögð. Hún tekur fram að ekkert formlegt samkomulag hafi verið gert. Meira »

Meira haldlagt af stinningarlyfjum

Viagra
10:32 Gríðarleg aukning varð í magni stinningarlyfja sem Tollgæslan lagði hald á við eftirlit í fyrra miðað við árið 2010. Hins vegar liggja ekki fyrir tölur um þróunina það sem af er þessu ári. Meira »

Aðeins sakfelldir fyrir sterana

Lögmenn í Straumsvíkurmálinu.
11:05 Sævar Sverrisson og Geir Hlöðver Ericsson eru báðir sakfelldir í Straumsvíkurmálinu svonefnda fyrir innflutning á sterum. Dómurinn taldi hins vegar ekki sannað að Geir Hlöðver hafi staðið að innflutningi fíkniefnanna sem voru í sama gámi og sterarnir. Meira »

„Gengur treglega að fá niðurstöðu“

Jóhanna Sigurðardóttir
10:51 „Varðandi skuldamálin erum við enn að skoða þessi lánsveð og það gengur treglega að fá niðurstöðu í þau mál,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, í fyrirspurnartíma á Alþingi í dag. Meira »

Prófa viðvörunarboð í farsíma

Á meðfylgjandi skjámynd má sjá hvernig hægt er að kalla fram upplýsingar um farsíma í ...
10:27 Viðvörunarkerfi sem getur sent neyðarskilaboð (sms) í farsíma vegna hættu hefur verið þróað til notkunar fyrir almannavarnir hér á landi. Verður kerfið reynt á þriðjudag með því að skilaboð verða send í farsíma í Vík í Mýrdal og nágrenni. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
HÚS TIL LEIGU Í VENTURA, ORLANDO, USA
Til leigu huggulegt hús á frábærum stað í Orlando,18h.golfvöllur/ódýrt spil,sund...
Íbúð til leigu á Selfossi
Tveggja herbergja íbúð fyrir 50 ára og eldri til leigu á Selfossi. Laus frá 1. ...
Söluvagn / Pulsuvagn til sölu.
Hef til sölu nýlegan söluvagn tilbúinn í rekstur. Fullbúinn til sölu á pulsum og...
Sirius Hundasnyrting, Hundaheim Mosfellsbæ
Tökum allar gerðir hunda í snyrtingu - Persónuleg þjónusta og frábær verð, gerið...
 
12834 stofnstígur útboð

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...
Ársfundur vina vatnajökuls

Ársfundur Vina Vatnajökuls, hollvinasamt...
Forval fit

Mynd af auglýsingu ...
Bókari og launafulltrúi
Skrifstofustörf
Samband íSlenSkra Sveitarfélaga Star...