Fleiri störf en hjá varnarliði

Rætt er um starfsemi Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar á Alþingi. stækka

Rætt er um starfsemi Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar á Alþingi. mbl.is/Sverrir

Geir H. Haarde, forsætisráðherra, sagði þegar hann flutti skýrslu um starfsemi Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar á Alþingi í dag, að ef vel tækist til við uppbyggingu á fyrrum varnarsvæði yrðu fleiri störf til á Suðurnesjum en voru þegar varnarliðið hafði þar bækistöðvar á varnarsvæðinu.

Geir sagði, að ár væri liðið frá því Alþingi samþykkti mótatkvæðalaust lög sem starfsemi félagsins byggja á.

„Við skulum ekki gleyma því hvernig umhorfs var á Keflavíkurflugvelli haustið 2006," sagði Geir og bætti við að 800 manns hefðu þá misst vinnuna við brotthvarf varnarliðsins. Nú störfuðu 400 manns á gamla varnarsvæðinu og starfsemin þar væri rétt að byrja. Með ólíkindum væri, að reynt væri að gera lítið úr uppbyggingarstarfinu eða gefa í skyn að ekki sé allt með feldu.

Geir sagði, að gagnrýni, sem komið hefði fram á sölu fasteigna á svæðinu væri ekki á rökum reist. 135 byggingar hefðu verið seldar til 5 aðila fyrir 15,7 milljarða króna og nær undantekningarlaust hefði hæsta tilboði verið tekið. Allar meginreglur um gagnsæi og val á hagkvæmasta tilboði hefðu verið hafðar til hliðsjónar. Ríkisendurskoðun hefði fengið í té allar upplýsingar um starfsemi þess en ekki talið sér heimilt að birta tilboð eða samninga nema með samþykki viðkomandi aðila. „Ég get fullyrt, að hvergi er maðkur í þessari mysu," sagði Geir.

Geir sagði að vegna þess hve vel hafi gengið að selja fasteignir ætti ekki að stranda á fjármagni hjá Þróunarfélaginu til að hreinsa svæðið en af því hefðu ýmsir haft áhyggjur.  

Atli Gíslason, þingmaður VG, sagði að sama væri þótt markmið væru góð og tilgangur, þá bæri að gæta opinberra reglna um meðferð almannaeigna. Þessu máli væri langt frá því að vera lokið.

Sagðist Atli hafa fengið í hendur mikið af gögnum og upplýsingum, sem ekki komu fram í ræðu forsætisráðherra. Þessi gögn sýndu að megn óánægja ríkti hjá fjölda fólks, þar á meðal margra sjálfstæðismanna á Suðurnesjum, sem sendi inn tilboð í fasteigninrnar en var dregið á asnaeyrunum.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Flaggað í hálfa stöng í Súðavík

Flaggað í hálfa stöng í Súðavík

11:51 Óvanaleg sjón blasti við íbúum Súðavíkur í morgun, en þá hafði einn íbúi bæjarins brugðið á það ráð að flagga fána Landsbankans öfugt, og í hálfa stöng. Meira »
Nýstúdentar frá Fjölbrautarskólanum í Garðabæ

Fengu 9,8 í meðaleinkunn

11:49 Tveir nýstúdentar frá Fjölbrautaskólanum í Garðabæ, Katrín Ásta Ingimarsdóttir og Sæþór Pétur Kjartansson, fengu 9,8 í meðaleinkunn í námi sínu. Meira »

Hjólin fá að snúast að nýju myndskeið

Hjol
12:23 Í dag hófst formlega hjólasöfnun Barnaheilla og flugfélagsins WOW þar sem landsmenn geta gefið gömul hjól með því að koma þeim á Sorpu en Mæðrastyrksnefnd mun sjá dreifingu hjólanna. Hjólin mega vera biluð því sérfræðingar munu lagfæra og gera við þau. Nemendur í Álfhólsskóla gáfu ónýtt hjól í dag. Meira »

Geir í nýtt starf

Geir H. Haarde
11:43 Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, hefur gengið til liðs við OPUS lögmenn sem ráðgjafi í alþjóðlegum verkefnum.  Meira »

Ölvaður og réttindalaus

11:37 Ölvaður ökumaður, karlmaður á fertugsaldri, velti bifreið á Reykjanesbraut í fyrrinótt. Hann missti stjórn á bílnum sem hafnaði utan vegar milli akreina. Einn farþegi var í bílnum og sluppu báðir ómeiddir. Meira »

„Hvatning til okkar beggja“

Forsetahjónin Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff.
12:12 „Þetta er ánægjuleg staðfesting á því sem við Dorrit höfum fundið á fundum, vinnustöðum og á viðræðum við fólk undanfarið,“ segir Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, um nýja skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2 þar sem hann mældist með 53,9% fylgi. Meira »

Mikið um reiðhjólaþjófnað

Mynd úr safni
11:39 Þjófnuðum á reiðhjólum hefur fjölgað umtalsvert í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum undanfarna daga.   Meira »

Tekinn á 134 km hraða

11:36 Ellefu ökumenn hafa verið staðnir að hraðakstursbrotum í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á undanförnum dögum. Sá sem hraðast ók var á 134 km hraða á Reykjanesbrautinni. Meira »

Ástþór losnar ekki við fyrirvara

Ástþór Magnússon og eiginkona hans Natalía Wiium.
11:34 „Ég veit ekki hversu margar þær eru en hann er búinn að skila viðbót núna,“ segir Katrín Theodórsdóttir, annar oddviti yfirkjörstjórna Reykjavíkurkjördæma norður og suður, aðspurð hvort hún geti staðfest að Ástþór Magnússon hafi skilað tæplega 200 viðbótarundirskriftum í morgun. Meira »

Með loftbyssu í farangrinum

Mynd úr safni
11:26 Lögreglunni á Suðurnesjum var í fyrradag gert viðvart um að karlmaður væri með loftbyssu og skotfæri í fórum sínum í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Höfðu munirnir komið fram við skimun öryggisgæslu á farangri mannsins. Meira »

Annað innbrotið á innan við viku

Mynd úr safni
11:29 Lögreglunni á Suðurnesjum barst í morgun tilkynning þess efnis að brotist hefði verið inn í fyrirtæki hjá Grófinni í Keflavík og þaðan stolið skrifstofubúnaði. Er þetta annað innbrotið í fyrirtækið í vikunni. Meira »

Kirkjugarðar geta varla starfað áfram

11:20 Kirkjugarðar geta ekki starfað áfram nema einingarverðið á hvern grafreit verði uppfært eins og það á að vera án allrar skerðingar,“ segir Þórsteinn Ragnarsson, formaður Kirkjugarðasambands Íslands (KGSÍ) og forstjóri Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma. Meira »

Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér

Nýsköpunarsjóði er ætlað að vera virkur fjárfestir í nýjum sprotafyrirtækjum.
11:19 Nýsköpunarsjóður er í þröngri stöðu og getur ekki beitt sér sem skyldi sem virkur fjárfestir í nýjum sprotafyrirtækjum. Þetta sagði Kristján Skarphéðinsson ráðuneytisstjóri í iðnaðarráðuneytinu á ársfundi sjóðsins. Meira »

Aðeins sakfelldir fyrir sterana

Lögmenn í Straumsvíkurmálinu.
11:05 Sævar Sverrisson og Geir Hlöðver Ericsson eru báðir sakfelldir í Straumsvíkurmálinu svonefnda fyrir innflutning á sterum. Dómurinn taldi hins vegar ekki sannað að Geir Hlöðver hafi staðið að innflutningi fíkniefnanna sem voru í sama gámi og sterarnir. Meira »

„Gengur treglega að fá niðurstöðu“

Jóhanna Sigurðardóttir
10:51 „Varðandi skuldamálin erum við enn að skoða þessi lánsveð og það gengur treglega að fá niðurstöðu í þau mál,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, í fyrirspurnartíma á Alþingi í dag. Meira »

„Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra.
11:18 „Ég er að segja að hann sé að segja ósatt um það að ég gangi hér á eftir þingmönnum og segi þeim hvernig þeir eigi að greiða atkvæði. Auðvitað gera þeir það sjálfir eins og þeir vilja. Ég hef ekki beitt mér á einn eða annan hátt í þessu máli,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir á Alþingi í dag. Meira »

Skoða leiðir um afnám hafta með ESB

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra.
10:51 Forsætisráðherra segir að stjórnvöld séu að skoða leiðir til að flýta afnámi gjaldeyrishaftanna í samstarfi við ESB. Jóhanna Sigurðardóttir ræddi málið við Stefan Füle, stækkunarstjóra ESB, í gær og segist hafa fengið jákvæð viðbrögð. Hún tekur fram að ekkert formlegt samkomulag hafi verið gert. Meira »

Meira haldlagt af stinningarlyfjum

Viagra
10:32 Gríðarleg aukning varð í magni stinningarlyfja sem Tollgæslan lagði hald á við eftirlit í fyrra miðað við árið 2010. Hins vegar liggja ekki fyrir tölur um þróunina það sem af er þessu ári. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Trúlofunar- og giftingahringar
Auk gullhringa eigum við m.a. titanium og tungstenpör á fínu verði. Sérsmíði, fr...
Málningar- og viðhaldsvinna
Getum bætt við okkur inni- og útiverkefnum. Vönduð vinnubrögð og góð umgengni. T...
TOYOTA PRIUS 7/2008 EKINN 64000 KM
Ti sölu mjög gott eintak af Prius,einn eigandi 100% þjónusta áett verð 2.790.000...
Gott hjól á góðu verði
Til sölu Honda VTX1300R árg 2004 Nýleg dekk, ný smurt og nýlegir bremsuklossar....
 
Menntunarsjóður mæðrastyrksnefndar reykjavíkur

MENNTUNARSJÓÐUR Mæðrastyrksnefndar Re...
Skólastjóri við grandaskóla
Grunn-/framhaldsskóla
Skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborg...
15229 bílaleigubílar ríkiskaup

15229 - Bílaleigubílar - Rammasamni...
12836 fellahverfi útboð

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...