Fordæma tilraun til ritskoðunar

Forsíða Ísafoldar.
Forsíða Ísafoldar.

Blaðamannafélag Íslands hefur sent frá sér ályktun þar sem fordæmdar eru allar tilraunir til ritskoðunar af hálfu verslana og eigenda þeirra.

Þar segir, að ritstjóri tímaritsins Ísafoldar haldi því fram, að ákvörðun um að hætta að selja blaðið í verslunum Kaupáss hafi verið tekin í kjölfar umfjöllunar blaðsins um bæjarstjóra Kópavogs.

Ákvörðunin hafi auk þess brotið í bága við gildandi dreifingarsamning milli Kaupáss og forsvarsmanna Birtings sem gefur út tímaritið, en honum hafi mátt segja upp með þriggja mánaða fyrirvara. Talsmenn útgáfunnar telja ljóst að draga þurfi saman seglin í kjölfarið.

„Blaðamannafélagið skrifaði Jóni Helga Guðmundssyni, forstjóra Kaupáss, fyrir mánuði og óskaði eftir skýringum á því að tímaritið Ísafold hefði verið tekið úr verslunum fyrirtækisins. Forstjórinn hefur ekki séð ástæðu til að svara. Þá vildi félagið vita hvort hann gæti tekið undir það grundvallarsjónarmið, að það væri í hæsta máta óheppilegt að verslanir tækju blöð og tímarit úr sölu, þvert á gerða samninga, ef eigendum þeirra líkaði ekki efni þeirra. Því var einnig látið ósvarað.

Ef það reynist rétt að áhrifamenn í viðskiptalífinu ætli að stjórna lestri blaða og tímarita með því að fjarlægja úr hillum allt lesefni með umfjöllun sem ekki fellur að þeirra smekk og allt það efni sem kann að innihalda aðrar skoðanir en þeirra eigin, þá er það áhyggjuefni. Blaðamannafélag Íslands telur óþolandi að áhrifamenn reyni í krafti valds síns, auðæfa eða viðskiptahagsmuna að hafa áhrif á skrif fjölmiðla. Mislíki mönnum umfjöllun fjölmiðla eiga þeir þess kost að leita til siðanefndar Blaðamannafélags Íslands eða dómstóla. Með aðgerðum sínum gagnvart tímaritinu Ísafold lítur út fyrir að stórfyrirtæki á Íslandi sé að beita áhrifum sínum á markaði til að knésetja tímarit og veigri sér ekki við að brjóta gerða samninga til að ná markmiði sínu," segir í ályktuninni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert