Vegamálastjóri að hætta

Jón Rögnvaldsson vegamálastjóri.
Jón Rögnvaldsson vegamálastjóri. mbl.is/Ásdís

Jón Rögnvaldsson, vegamálastjóri, hefur ákveðið að láta af störfum 1. mars næstkomandi. Þá lýkur fimm ára ráðningartímabili hans sem vegamálastjóra og hefur hann þegar tilkynnt samgönguráðherra ákvörðun sína.

Fram kemur á vef Vegagerðarinnar að Jón telji heppilegt að láta af störfum á þessum tímapunkti eftir ríflega 43 ára samfellt starf hjá Vegagerðinni. Hann verður þá orðinn 69 ára gamall.

Samkvæmt lögum skipar ráðherra nýjan vegamálastjóra til fimm ára frá og með 1. mars.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert