Framlag Íslands 4 milljónir dala

Frá ráðstefnunni í morgun
Frá ráðstefnunni í morgun AP

Íslendingar taka þátt í alþjóðlegri ráðstefnu um efnahagslegan stuðning við Palestínu sem fram fer í París í dag. Framlag Íslands verður fjórar milljónir Bandaríkjadala, 255 milljónir króna, á næstu þremur árum. Gréta Gunnarsdóttir, sviðsstjóri alþjóða- og öryggismála, situr fundinn fyrir Íslands hönd.

Ráðstefnan er haldin í framhaldi af friðarviðræðunum í Annapolis í nóvember og er markmiðið að styðja við bakið á tveggja ára umbóta- og þróunaráætlun heimastjórnar Palestínumanna.

Utanríkisráðuneytið hefur undanfarna mánuði unnið samkvæmt sérstakri framkvæmdaáætlun um Mið-Austurlönd sem samþykkt var í ríkisstjórn og rædd í utanríkismálanefnd eftir ferð utanríkisráðherra Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur til Mið-Austurlanda í júlí, að því er segir í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert