Stormviðvörun

Varað er við stormi í kvöld og nótt.
Varað er við stormi í kvöld og nótt. mbl.is/Kjartan Þorbjörnsson

Búist er við stormi á vestanverðu landinu og miðhálendinu í kvöld og nótt. Samkvæmt spá Veðurstofu Íslands er vaxandi austlæg átt og rigning eða slydda með morgninum, fyrst sunnantil, en sunnan 15-23 m/s og talsverð rigning vestantil í kvöld og nótt, en hægari og úrkomulítið NA- og austanlands.

 Snýst í suðvestan 13-20 með skúrum um landið sunnan- og vestanvert undir morgun, hvassast norðvestantil. Heldur hægari seint á morgun. Hiti víða 2 til 7 stig, en 4 til 10 stig síðdegis.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert