Börn greiði ekki komugjöld

Heilsugæslustöð í Mjódd.
Heilsugæslustöð í Mjódd. mbl.is/Þorkell

Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra, hefur ákveðið að fella niður komugjöld barna 18 ára og yngri á heilsugæslustöðvar og sjúkrahús.  Komugjöld fullorðinna hækka hinsvegar úr 700 krónum í 1000 krónur. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða áfram hálft gjald fyrir komu á heilsugæslustöð, eða 500 krónur fyrir heimsókn á dagvinnutíma.

Börn yngri en 18 ára hafa hingað til þurft að greiða 350 krónur fyrir að koma á heilsugæslustöð á dagvinnutíma og 800 krónur fyrir að koma utan dagvinnutíma. Börn hafa svo þurft að greiða tæplega 1500 krónur fyrir fyrstu komu á slysa- og bráðamóttöku Landsspítalans. Þessi gjöld falla niður frá og með 1. janúar.

Fyrir komu og endurkomu á slysa og bráðamóttöku sjúkrahúsa verður almennt gjald 4000 krónur og hækkar um 300 krónur. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða hálft gjald eða 2000 krónur. Gjald vegna komu eða endurkomu á göngudeildir spítala vegna þjónustu annarra en lækna verður almennt 2100 krónur og hækkar um rúmlega 200 krónur. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða í framtíðinni 1100 krónur.

Þegar sjúkratryggður einstaklingur á aldrinum 18 - 70 ára hefur samtals greitt 21.000 krónur á sama almanaksári vegna heilbrigðisþjónustu á hann rétt á afsláttarskírteini. Er átt við heimsóknir á heilsugæslustöðvar eða til heimilislækna, vitjanir lækna, heimsókir á slysadeild, göngudeildir og bráðamóttöku sjúkrahúsa, heimsóknir til sérfræðilækna utan sjúkrahúsa og til sérfræðilækna á göngudeildir sjúkrahúsa, rannsóknir á rannsóknastofum, geisla- og myndgreiningar og beinþéttnimælingar.

Sama gildir þegar kostnaður vegna barna í sömu fjölskyldu fer yfir sjö þúsund krónur á almanaksárinu, þ.e. þá eiga fjölskyldur rétt á afsláttarskírteini vegna barnanna. Þegar lífeyrisþegar hafa greitt 5200 krónur á sama almanaksári vegna þjónustunnar sem hér er tilgreind eiga þeir rétt á afsláttarskírteini sem Tryggingastofnun gefur út. Þetta eru ellilífeyrisþegar 70 ára og eldri, örorkulífeyrisþega og ellilífeyrisþega 67-70 ára, sem nutu örorkulífeyris fram til 67 ára aldurs, og ellilífeyrisþega 60-70 ára sem njóta óskerts ellilífeyris.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert