Kveikt var í áramótabrennum á höfuðborgarsvæðinu í dag klukkan 18 en vegna slæmrar veðurspár var öllum brennum aflýst á höfuðborgarsvæðinu og á flestum stöðum á landinu í gær. Talsverður fjöldi fólks lagði leið sína að brennunum. Í kvöld verður kveikt í áramótabrennunni á Akureyri klukkan 20:30.