Mikill erill hjá lögreglu á höfuðborgarsvæðinu

Lögreglan að störfum í miðborginni
Lögreglan að störfum í miðborginni mbl.is/Júlíus

Mikill erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í alla nótt og tólf gista fangageymslur eftir nóttina. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var tilkynnt um níu líkamsárásir en ekki er vitað til þess að um alvarleg meiðsl hafi verið að ræða.

Ólætin í nótt voru ekki bundin við miðborgina enda margir að skemmta sér í heimahúsum allt til morguns. Sex voru teknir grunaðir um ölvun við akstur í nótt.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert