Hjálparsveit skáta í Kópavogi var kölluð út á þriðja tímanum í dag vegna vélarvana báts í Kópavogi. Báturinn, sem er þriggja tonna Sómabátur, var með bilaðan gír og var hann staddur um 300 m NV af Kársnesi. Einn maður var í bátnum. Björgunarbáturinn Stefnir fór á staðinn og dró bátinn til hafnar.