Tekinn á 139 km hraða á Reykjanesbraut

mbl.is/Júlíus

Fjórir ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum í dag og mældist sá er hraðast ók á 139 km/klst á Reykjanesbraut þar sem leyfður hámarkshraði er 90 km/klst. Tveir voru handteknir grunaðir um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert