Fjarskiptamál í ólestri í Árneshreppi

Séð yfir Trékyllisvík í Árneshreppi.
Séð yfir Trékyllisvík í Árneshreppi. mbl.is/GSH

Fjarskiptamál Árneshreppsbúa hafa verið í miklum ólestri því ISDN+ tenging þeirra hefur legið niðri hálfu dagana undanfarna viku, símalínur dottið út og langbylgjusendingar Ríkisútvarpsins verið götóttar.

FM-sendingar nást ekki í öllum hreppnum og því reiða margir sig á þessar lögboðnu útsendingar útvarpsins að ógleymdum skipum sem sigla fyrir norðan land, en fyrir sjófarendur eru langbylgjusendingar mikil öryggistæki.

Jón G. Guðjónsson, veðurathugunarmaður í Litlu-Ávík, segir að hnn hafi fengið þær upplýsingar hjá Ríkisútvarpinu að orsök sendingartruflana langbylgju sé bilun í sendi á Gufuskála eftir ofsaveður rétt fyrir jól og að unnið sé að viðgerð. Síminn gat litlar skýringar gefið en að sögn Jóns er miðlæg símstöð í hreppnum gömul og úr sér gengin og því ekki við Símann að sakast.

Jón Bjarnason, þingmaður Norðvesturkjördæmis segir að þessi atriði séu hluti af stærra vandamáli sem muni leggja hreppinn í eyði, sé ekkert að gert. Til marks um það hve afskiptur hreppurinn hefur verið í fjarskiptamálum þá er símalínukvóti hreppsins fullur og því geta til dæmis sumarbústaðaeigendur ekki fengið síma, hvað þá nýir íbúar, auk þess sem ekkert GSM-samband er á svæðinu.

Enn bólar ekkert á framkvæmdum tillagna nefndar sem skipuð var af Byggðastofnun árið 2004 til verndunar búsetu og menningarlandslags í hreppnum, í framhaldi af þingsályktunartillögu frá árinu 2001 sem lögð var fram af þingmönnum Vestfirðinga, undir forystu Einars K. Guðfinnssonar. Tillagan var samþykkt samhljóða á Alþingi vorið 2003.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert