Borgarbúar beðnir um að moka frá sorptunnum

Talsvert hefur snjóað í Reykjavík undanfarna daga.
Talsvert hefur snjóað í Reykjavík undanfarna daga. Árvakur/RAX

Sorphirðan í Reykjavík biður borgarbúa um að moka frá sorptunnum um helgina. „Þetta hefur verið þung vika fyrir starfsfólk sorphirðunnar,“ segir Sigríður Ólafsdóttir rekstrarstjóri hennar, í tilkynningu. Ekki er nóg að moka frá bílum og útidyrum heldur þarf einnig að moka frá sorphirðugeymslum.

„Ef aðgengi að sorptunnum er slæmt og íbúar hafa ekki sinnt því að greiða götu okkar með því að moka verðum við stundum að sleppa því að tæma tunnur,“ segir Sigríður og að stundum hafi fólk jafnvel mokað fyrir tunnurnar - snjó frá bílum og útidyrum. Starfsfólk Sorphirðunnar er þreytt eftir vikuna og vonast til að fólk gefi sér tíma um helgina til að moka frá geymslum og tunnum. Á þriðjudag í næstu viku er búist við slyddu og ef mokstur fer ekki fram skapast lúmsk hálka sem síðar snjóar yfir.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka