Erró áritar bók og gefur grafíkverk á morgun

Erró.
Erró.

Listamaðurinn Erró mun árita bókina ERRÓ Í TÍMARÖÐ – líf hans og list á morgun kl. 11.00 í Bókabúð Máls og menningar. Með hverri seldri bók fylgir áritað og númerað grafíkverk sem hægt er að fella inn í bókina, samkvæmt tilkynningu.

Um tvenns konar grafíkverk er að ræða en einungis 100 eintök eru til af hvorri mynd. Í för með Erró er höfundur bókarinnar, Danielle Kvaran listfræðingur, sem búsett er í Noregi, og mun hún einnig árita bókina.

Erró og Danielle Kvaran munu einnig árita bókina og gefa áðurnefnd grafíkverk á Listasafni Reykjavíkur klukkan 14.00 á morgun.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert