Ólafur F. Magnússon: Mikil vonbrigði
Frá blaðamannafundinum á Kjarvalsstöðum í gær þar sem nýr meirihluti var kynntur Árvakur/Árni Sæberg
Ólafur F. Magnússon, formaður flokks frjálslyndra í Reykjavík og verðandi borgarstjóri, segir það mikil vonbrigði að Margrét Sverrisdóttir og Guðrún Ásmundsdóttir hyggist ekki starfa með F-listanum. Hann segist túlka tilkynningu fráfarandi meirihluta sem svo að þær vilji ekki sitja í nefndum í borginni í skjóli umboðs flokksins.
Samfylking, Vinstrihreyfingin - grænt framboð og Framsóknarflokkurinn sendu ásamt Margréti og Guðrúnu frá sér tilkynningu fyrr í dag þar sem fram kom að hópurinn hyggðist áfram starfa saman að borgarmálum þótt meirihlutasamstarfinu hefði verið slitið.
„Mér þykir leitt ef Margrét vill ekki áfram vera formaður í mennta- og ferðamálanefnd, en það hefur verið gagnkvæm ánægja með hennar störf. Það er ljóst að ef ég skil þetta rétt, þá eru þær að snúa baki við okkur [flokknum] og kjósendum og þeim málefnum sem þær voru kjörnar út á."
Þessu segist Ólafur ekki hafa viljað trúa fyrirfram og að reynt hafi verið ítrekað og árangurslaust að ná tali af Margréti og Guðrúnu. Hann segist túlka fréttatilkynningu Samfylkingar, vinstri-grænna og framsóknarmanna sem svo að þær vilji ekki láta ná í sig.
„Þær verða að gera það upp við sig sjálfar ef þær vilja kalla yfir sig áhrifaleysi innan borgarstjórnar það sem eftir er af kjörtímabilinu."
Um framtíðina hjá flokknum segir Ólafur að hann finni fyrir miklum stuðningi frá grasrót flokksins og kjósendum við sig sem oddvita og málefni flokksins.
Ekki hefur verið rætt um það hverjir taki að sér nefndarsstörf fyrir flokkinn, en ekki er kveðið á um að aðilar í nefndum borgarinnar skuli vera kjörnir borgarfulltrúar.
Kristbjörg Stephensen, borgarlögmaður, segir að engar sérstakar reglur gildi um það hverjir megi sitja í nefndum á vegum borgarinnar nema hvað nefndarmenn verði að búa í kjördæminu og formenn nefnda verði að vera borgarfulltrúar eða varaborgarfulltrúar.
Segir Kristbjörg að öðru máli gildir reyndar um sjálfa borgarstjórn og borgarráð, en að í almennum fagnefndum gildi almennt það eitt að formaður skuli vera kjörinn borgarfulltrúi eða varaborgarfulltrúi. Ekki er heldur gerð krafa um að nefndarmenn hafi skipað sæti á lista flokks í borgarstjórn.
Bloggað um fréttina
-
Brjánn Guðjónsson Pólitískt vændi? -
Jón Finnbogason Engin tengsl við raunveruleikann -
Dofri Hermannsson Úbbs, hann gerði það aftur! -
Jón Ingi Cæsarsson Kjáni ?? -
Gunnar Th. Gunnarsson Ófær í meirihluta -
Guðrún Helgadóttir hefði ekki verið rétt að spyrja fyrst -
Sigurður Hólmar Karlsson Ef að vantar í nefnd -
Kjartan Pétur Sigurðsson HÉR ER PLOTTIÐ - PÓLITÍSKUR HRÁSKINNALEIKUR :) -
Þorsteinn Gunnarsson Við hverju bjóstu eiginlega sauðurinn þinn? -
Námsmaður bloggar Hvers eigum við Reykvíkingar að gjalda ? -
-
Guðfinnur Sveinsson Einn stór brandari - gef þessu 3 mánuði -
Andrea J. Ólafsdóttir Þetta lýðræði - þetta lýðræði -
Stefán Friðrik Stefánsson F-listinn án formannssæta í nefndum borgarinnar -
Hrönn Ríkharðsdóttir Hver vill ekki vinna með hverjum? -
Tryggvi Hübner Nóg boðið . . . -
Egill Rúnar Sigurðsson Við hverju bjóst maðurinn?! -
Sigurður Viktor Úlfarsson Ef það er of gott til að vera satt...
Innlent »
- Má gera athugasemdir í næsta blaði
- Kærir Snorra til lögreglu
- Hvessir undir Eyjafjöllum
- Jón Baldvin biðst afsökunar á bréfi
- 5,5 laxar í þúsund tonnum makríls
- Stöðvarhúslóð í Bjarnarflagi könnuð
- Brotist inn í Húsaskóla
- Þvottavélin lokaði hurðinni
- Borgarstarfsmenn ósáttari
- Ekkert samráð um frumvarpið
- Ferðamannastraumur til Akureyrar
- Heimsmeistari kvenna í skák keppir hér á landi
- Vindorka könnuð og kortlögð
- Virðingarleysi við vinnu allra
- Vestan stormur við suðurströndina í kvöld
Miðvikudagur, 22.2.2012
- Þingið brást stjórnlagaráði
- Ný skátaöld að hefjast
- Hefur afplánun á Skólavörðustíg
- Auka þarf umfang vöktunar
- Dráttur í beinni
- Þingmenn lesa Passíusálmana
- Ísing á Hellisheiði
- Lánað án trygginga og heimildar
- Allt að 100 ný störf
- Fimm sviptir á Suðurgötu
- Lagaramminn ekki sá einfaldasti
- Mikið sungið í bankanum
- Lögðu hald á marijúna og e-töflur
- Ábendingar til borgarinnar
- 2,1 milljarður í þróunarsjóði
- Jón Baldvin íhugar lögbann
- Varasamur vegarkafli
- Færri fara í tæknifrjóvganir
- Notaði munnhörpu sem hnúajárn
- Fá ekki frítt í sund
- Segist ekki saka sýslumenn um lögbrot
-
Ómarkviss þjóðaratkvæðagreiðsla
- Varað við lúmskri ísingu
- „Þetta eru forkastanleg vinnubrögð“
- Aftur til stjórnlagaráðs
- Vill ESB-tillögu á dagskrá
- Nokkur fjöldi mála í athugun
- Hæfileikakeppni á mbl.is og Skjá einum
- Fjallað um bréf Jóns Baldvins til unglingsstúlku
- Vilja úttekt á stöðu verslunar í miðborginni
- Lýst eftir stolnum bíl
- Fordæma árás á starfsmann
- Litskrúðugt og líflegt í Fríhöfninni
- Ráðist á einn stjórnenda Dróma
- Hafna ásökunum Hagsmunasamtaka heimilanna
- Hlutverk FME að rannsaka Dróma
- Jórunn Pála formaður Vöku
- Slysavarnaskólinn fékk björgunarbúninga
- Forsendur fyrir áframhaldandi ráðningu brostnar
-
Hrafnshræ voru í tunnunum
- Smyglaði áfengi og tóbaki
- Gísli Páll: Hreyft við velferðarráðherra
- Fólk með ólæknandi sjúkdóma sækir ráðgjöf
- Umfjöllun í Nýju lífi um bréf Jóns Baldvins Hannibalssonar
- Grunnskólakennari fordæmir samkynhneigð
- Fjárlagafrumvarp 2011
- Landsdómur
- Kvótafrumvarp
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 21. janúar 2008, Innlent Nýr meirihluti kynntur
- Þriðjudagur, 22. janúar 2008, Innlent Margrét og Guðrún með gamla meirihlutanum
- Miðvikudagur, 23. janúar 2008, Innlent Töldu Margréti með
- Mánudagur, 22. janúar 2007, Innlent Borgarstjórnarflokkur F-lista styður Margréti
- Fimmtudagur, 24. janúar 2008, Innlent Meirihluti í borginni: Vinnubrögð þau sömu og í REI
-
Umferðamiðstöð sprengd í Peshawar
-
Færir Advania forystu?
-
Fangaverðir hjálpuðu föngum að flýja
-
Fundu lík fimm ára stúlku
-
Talinn hafa skotið bekkjarsystur sína
-
Kristrún: Eigum séns á að komast í úrslitakeppnina
-
Bragi: Sorglegt baráttuleysi
-
Blár Ópal tryllir lýðinn




































