Aurora úthlutar 210 milljónum króna

Hjónin Ingibjörg og Ólafur með son sinn, Ólaf Orra.
Hjónin Ingibjörg og Ólafur með son sinn, Ólaf Orra. Árvakur/RAX

Stjórn Aurora velgerðasjóðs kynnti í dag þá ákvörðun sína að ráðstafa alls 210 milljónum króna til fyrstu styrktarverkefna sjóðsins. Fuglasafn Sigurgeirs í Mývatnssveit fær 20 milljónir króna, héraðssjúkrahúsið í Mangochi í Afríkuríkinu Malaví fær 20 milljónir króna, menntaverkefni UNICEF í Afríkuríkinu Síerra Leóne fær alls 120 milljónir króna og nýr sjóður til styrktar ungu tónlistarfólki, Kraumur, fær 50 milljónir króna.

Hjónin Ingibjörg Kristjánsdóttir landslagsarkitekt og Ólafur Ólafsson, stjórnarformaður Samskipa, stofnuðu velgerðasjóðinn fyrir réttu ári á fimmtugsafmæli Ólafs, 23. janúar 2007, og lögðu honum til einn milljarð króna í stofnframlag. Sjóðnum var síðar gefið nafnið Aurora (segulljós), honum voru settar samþykktir og starfsreglur og sjóðsstjórn skipuð.

Gert er ráð fyrir að verja arði og vaxtatekjum sjóðsins til ýmissa verkefna í þróunarlöndum og til að göfga mannlíf á Íslandi með því að styrkja verkefni á sviði menningar, mennta og lista í samræmi við samþykktir sjóðsins og ákvörðun sjóðsstjórnar hverju sinni, samkvæmt tilkynningu.

Stjórn velgerðasjóðsins tilkynnir nú um fyrstu styrkina úr sjóðnum, samtals 100 milljónir króna, til fjögurra verkefna árið 2008. Tvö þessara verkefna eru til þriggja ára og í raun ráðstafar stjórn velgerðasjóðsins því alls 210 milljónum króna:

Fuglasafn Sigurgeirs í Mývatnssveit fær 20 milljónir króna til að koma upp fullkominni sýningaraðstöðu með tilheyrandi búnaði í nýbyggingu safnsins að Ytri-Neslöndum í Mývatnssveit.

Héraðssjúkrahúsið í Mangochi í Afríkuríkinu Malaví fær 20 milljónir króna vegna framkvæmda við að stækka og efla barnadeildina þar.

Verkefnin sem hlutu styrki til þriggja ára:

Menntaverkefni UNICEF í Afríkuríkinu Síerra Leóne fær alls 120 milljónir króna á þremur árum til að byggja upp barnvænt menntakerfi og skólahúsnæði, einkum með þarfir stúlkubarna í huga. Veittar verða 40 milljónir króna í ár, 40 milljónir króna árið 2009 og 40 milljónir króna árið 2010.

Nýr sjóður til styrktar ungu tónlistarfólki, Kraumur að nafni, fær alls 50 milljónir króna til að styrkja ungt tónlistarfólk til listsköpunar og kynningar á verkum sínum, þar af 20 milljónir í ár og samtals 30 milljónir króna 2009 og 2010. Kraumur tónlistarsjóður er stofnaður að frumkvæði Aurora velgerðasjóðs, að því er segir í tilkynningu.

Stjórn Kraums tónlistarsjóðs skipa Þórunn Sigurðardóttir, Ásmundur Jónsson og Pétur Grétarsson. Framkvæmdastjóri Kraums er Eldar Ástþórsson. Fagráð Kraums skipa Björk Guðmundsdóttir tónlistarmaður, Anna Hildur Hildibrandsdóttir, framkvæmdarstjóri Útflutningsskrifstofu íslenskrar tónlistar (ÚTÓN), Árni Heimir Ingólfsson, tónlistarstjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands, Árni Matthíasson, blaðamaður á Morgunblaðinu, Mist Þorkelsdóttir, deildarforseti Tónlistardeildar Listaháskóla Íslands, Kjartan Sveinsson, hljómborðsleikari SigurRósar og SJÓN (Sigurjón Birgir Sigurðsson), rithöfundur.

Stjórn Aurora velgerðasjóðs skipa stofnendur hans, hjónin Ingibjörg Kristjánsdóttir og Ólafur Ólafsson. Meðstjórnendur eru Sigurður Einarsson,
stjórnarformaður Kaupþings, Sigurður Guðmundsson landlæknir og Þórunn
Sigurðardóttir, listrænn stjórnandi Listahátíðar í Reykjavík.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert