Dómarafélag Íslands: Ráðherra færði ekki viðhlítandi rök

Dómarafélag Íslands hefur sent frá sér ályktun vegna síðustu skipun setts dómsmálaráðherra í embætti héraðsdómara. Í ályktuninni segir m.a. að það sé álit stjórnar félagsins að ráðherra beri að hafa hafa umsögn nefndar til hliðsjónar við skipun dómara eða færa fyrir því viðhlítandi rök, en það hafi ráðherra ekki gert.

Ályktun Dómarafélags Íslands:


Á síðustu áratugum hefur verið unnið að því að styrkja stöðu og sjálfstæði dómsvaldsins sem einn þátt ríkisvaldsins. Mikilvægum áfanga í því efni var náð með lögum um aðskilnað dómsvalds og umboðsvalds í héraði nr. 92/1989 og var sú braut fetuð áfram með lögum um dómstóla nr. 15/1998. Í athugasemdum sem fylgdu frumvarpi til laga um dómstóla var lögð á það áhersla að við mótun löggjafar um dómstóla yrði að hafa í huga eftirlitshlutverk þeirra með hinum tveimur valdþáttum ríkisins. Meðal verkefna dómstóla væri að skera úr um embættistakmörk yfirvalda, dæma í refsimálum sem framkvæmdarvaldið höfðaði og um það hvort löggjafinn hefði haldið sig innan þess ramma sem honum væri settur með stjórnarskrá. Síðan segir svo: „Með framangreint í huga hefur þeirri stefnu verið fylgt við samningu frumvarpsins að tryggja verði í sem ríkustum mæli að dómstólarnir verði óháðir hinum tveimur þáttum ríkisvaldsins sem þeir hafa eftirlit með. Verði jafnframt að miða ákvæði frumvarpsins við það að ekki sé nægilegt að þetta sjálfstæði dómstólanna sé tryggt í raun, heldur að sjálfstæðið og trúverðugleikinn, sem því fylgir, sé öllum sýnilegur.“

Til þess að sjálfstæði dómstóla sé tryggt í raun skiptir verulegu máli hvernig staðið er að skipun í dómaraembætti. Hafa og ýmsar alþjóðlegar reglur verið settar til viðmiðunar til að stuðla að því að ákvarðanir um skipun dómara séu reistar á málefnalegum grundvelli. Evrópusamtök dómara hafa sett reglur um það að val á dómara skuli eingöngu byggjast á hlutlægum sjónarmiðum sem tryggi faglega hæfni hans. Í tilmælum ráðherranefndar Evrópuráðsins til aðildarríkja þess um sjálfstæði, skilvirkni og hlutverk dómara koma sömu sjónarmið fram. Alþjóðasamtök dómara hafa og ályktað um það að mikilvægt sé til þess að tryggja sjálfstæði dómstólanna að gætt sé algerlega hlutlægra viðmiðana við val á dómara. Á hinum Norðurlöndunum eru starfandi lögbundnar umsagnarnefndir og ber veitingavaldinu að taka tillit  til álits þeirra við skipun í dómaraembætti.

Til þess að treysta sjálfstæði dómstóla að þessu leyti hér á landi var með lögum komið á fót sérstakri dómnefnd til að fjalla um hæfni umsækjenda um embætti héraðsdómara. Tilgangurinn með nefndinni var jafnframt sá að auka traust almennings á því að dómarar væru óháðir handhöfum framkvæmdarvaldsins.

Í samræmi við það sem hér hefur verið rakið er það álit stjórnar Dómarafélagsins að ráðherra beri við skipun í dómaraembætti að hafa hliðsjón af umsögn nefndarinnar þótt hann sé ekki bundinn af henni. Kjósi ráðherra á hinn bóginn að leggja umsögnina ekki til grundvallar, eins og gert var í því tilviki sem hér um ræðir, ber honum að færa fyrir því viðhlítandi rök.  Stjórn Dómarafélags Íslands telur að það hafi ráðherra ekki gert.

Reykjavík, 23. janúar 2008

   Í stjórn Dómarafélags Íslands 
Eggert Óskarsson
Arngrímur Ísberg
Benedikt Bogason
Gréta Baldursdóttir
Hjördís Hákonardóttir

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Þingmenn Hreyfingarinnar standa að Breiðfylkingunni.

Vilja efla siðferði í stjórnmálum

12:53 Stofnfundur Breiðfylkingarinnar hófst á hádegi en að henni standa Borgarahreyfingin, Frjálslyndi flokkurinn, Hreyfingin og einstaklingar úr stjórnlagaráði. Í kjarnastefnu fylkingarinnar segir að leysa verði skuldavanda heimilanna og efla siðferði í stjórnmálum. Meira »
Lilja Mósesdóttir.

Enginn með einkarétt á Samstöðu

12:44 Lilja Mósesdóttir, formaður stjórnmálaflokksins Samstöðu, segir að átta félög hafi verið skráð í fyrirtækjaskrá undir nafninu Samstaða. Eitt af þeim var stjórnmálaafl á landsvísu sem breytti nafni sínu til að Samstaða Lilju gæti fengið nafn sitt. Meira »

Yrði ōðruvísi biskup myndskeið

biskupsframbod gunnar
11:45 MBL Sjónvarp ræðir á næstu vikum við frambjóðendur í biskupskjörinu sem fer fram á næstunni. Þannig gefst almenningi tækifæri á að kynnast þeim sem eru í framboði þó kosningaréttur sé ekki almennur. Séra Gunnar Sigurjónsson prestur í Digraneskirkju ríður á vaðið. Meira »

Lætur hátt í fangaklefa

10:51 Lögregla höfuðborgarsvæðisins var kölluð að samkvæmi við Smiðjustíg á sjöunda tímanum í morgun þar sem einn gestanna var með uppsteit. Að sögn lögreglu var maðurinn óviðráðanlegur af bræði og réðst hann á lögreglumenn sem hugðust vísa honum úr samkvæminu. Hann var handtekinn og er í fangaklefa, þar sem hann lætur hátt, að sögn lögreglu. Meira »

Leikstjórinn kom inn sem ljón

Skot úr sýningunni um Galdrakarlinn í Oz.
10:09 Leikarinn Halldór Gylfason var fluttur á slysadeild í gær þegar hann slasaðist við sýningu á Galdrakarlinum í Oz. Lúga opnaðist fyrir mistök á sviðinu þegar Halldór gekk um það og datt hann niður um hana. Tjaldið var snögglega dregið fyrir og varð úr að leikstjóri sýningarinnar kláraði sýninguna. Meira »

Handteknir fyrir að keyra á mann

Ekið var á manninn í Austurstræti.
11:03 Tveir menn voru handteknir á heimili annars þeirra á sjötta tímanum í morgun vegna gruns um að annar hvor þeirra hefði ekið á mann í Austurstræti á fimmta tímanum. Mennirnir gista fangageymslur og verða yfirheyrðir þegar líður á daginn. Meira »

Martröð í matarboði myndskeið

Stuttmyndahornið: Martröð í matarboði
10:33 Myndin Takk fyrir mig er fimmta myndin sem MBL Sjónvarp sýnir í samvinnu við Kvikmyndaskóla Íslands. Myndin fjallar um matarboð sem virðist ætla að ganga vel þar til einn gestanna uppgötvar skuggahliðar gestgjafans. Meira »

Fjöruverðlaun eftir viku

Bækur níu kvenna eru tilnefndar til Fjöruverðlaunanna.
09:42 Misritað var í Morgunblaðinu í gær að Fjöruverðlaunin, bókmenntaverðlaun kvenna, verði afhent í Iðnó í dag, en rétt er að það verður eftir viku, 18. febrúar næstkomandi, en þá verður haldin Góugleði í Iðnó. Gestur verðlaunahátíðarinnar verður rithöfundurinn og grínistinn Sandi Toksvig. Meira »

Enn skelfur við Grímsey

Skjálftar á landinu í morgun.
09:38 Töluverður fjöldi jarðskjálfta hefur mælst í nótt og fram á morgun við Grímsey. Sá stærsti sem mælst hefur var um tvö stig og voru flestir af svipuðum styrkleika. Meira »

Fíkniefnasali handtekinn

08:44 Lögerglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í nótt mann, sem var að selja fíkniefni við veitingahús í borginni en maðurinn var með fíkniefni í söluskömmtum innanklæða. Meira »

Opið á skíðasvæðum

Fólk á skíðum.
09:26 Þó svo auð jörð sé í höfuðborginni er víða hægt að skíða í dag. Þannig fer fram Oddskarðssmót og þar verður keppt í svigi 9 til 12 ára. Opið verður í Oddsskarði frá klukkan 10 til kl. 16 og eru aðstæður býsna góðar. Einnig er opið á skíðassvæði Dalvíkur og á skíðasvæðinu í Tindastól. Meira »

Braut rúðu í lögreglubíl

08:40 Maður var handtekinn við krá í Hafnarfirði í nótt eftir að hann braut rúðu í lögreglubíl.  Meira »

„Ég er í skýjunum“

Greta Salóme og Jónsi í kvöld.
Í gær, 23:35 „Ég er í skýjunum,“ sagði Greta Salóme Stefánsdóttir, texta- og lagahöfundur lagsins Mundu eftir mér sem verður framlag Íslands í Evróvisjónkeppninni í Aserbaídsjan í maí. Greta sagðist vilja þakka sínum nánustu og samstarfsfélögum, en nú ætlaði hún að njóta kvöldsins og leyfa því að líða. Meira »

Jónsi og Greta til Bakú

Jónsi og Greta í Hörpu.
Í gær, 22:29 Mundu eftir mér er framlag Íslands til Evróvisjón-keppninnar í Aserbaídsjan í maí. Íslenska framlagið keppir í fyrri hluta fyrri undanriðils þann 22. maí en aðalkeppnin fer fram 26. maí. Símakosning auk dómnefndar skar úr um hvaða lag var valið. Meira »

Helmingur vill að ákæran verði dregin til baka

Geir H. Haarde fyrir Landsdómi.
Í gær, 19:52 Jafnmargir eru því fylgjandi að ákæra á hendur Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, verði dregin til baka og andvígir því, samkvæmt niðurstöðum úr könnun Stöðvar tvö og Fréttablaðsins sem greint var frá í kvöldfréttum Stöðvar 2. Meira »

„Mjög sérstök tilfinning“

Jónsi og Greta Salóme.
Í gær, 23:12 „Mjög sérstök tilfinning,“ sagði Jón Jósep Snæbjörnsson, Jónsi, eftir að ljóst var að hann færi með Gretu Salóme til Bakú í Aserbaídjan til að keppa fyrir hönd Íslands í Evróvisjón. Jónsi sem tekur þátt í Evróvisjón í annað skipti sagðist ekki alveg hafa náð utan um þá staðreynd enn. Meira »

Úrslitakeppnin hafin í Hörpu

Keppnin fer fram í Hörpu.
Í gær, 20:33 Úrslitakvöld forkeppni Evróvisjón er hafið í Hörpu, en í kvöld kemur í ljós hverjir keppa fyrir hönd Íslands í lokakeppni söngvakeppninnar sem fram fer í Bakú í Aserbaídjan síðar á árinu. Meira »

Fjör á 112-deginum á Húsavík

Börnum og unglingum var boðið í stutta sjóferð á Jóni Kjartanssyni, báti Björgunarsveitarinnar Garðars.
Í gær, 17:35 Víðar var haldið upp á 112-daginn en aðeins í Reykjavík. Þannig lögðu fjölmargir leið sína í björgunarsveitarhúsið Naust á Húsavík þar sem viðamikil dagskrá fór fram. Meira »

Innlend málefni

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Veglegur kaupauki með Herbalife
Er með 3 pakka með MJÖG veglegum kaupauka. Startpakka á 13.800, Brennslupakka á...
Fallegu silfurskeiðarnar eru smíðaðar
í smiðjunni okkar ásamt borðsilfrinu íslenska. Skeiðarnar kosta 17.500,- og við ...
Head skíði og Salomon skíðaskór
Ársgömul og mjög lítið notuð Head skíði 120 cm hvít með svörtum stöfum og með mj...
Flottur hönnunarsófi
Til sölu mjög flottur sófi sem var hannaður fyrir Þjóðleikhúskjallarann þegar Þj...
 
Reykjavíkurborg deiliskipulag

Reykjavíkurborg Skipulags- og byggingar...
15087 leiguhúsnæði fyrir vínbúð átvr
Tilboð - útboð
15087 - Leiguhúsnæði f...
Stúkan gimli
Félagsstarf
l Gimli 6012020619 III°...
Aðalfundur félags sjálfstæðismanna í skóga- og seljahverfi

Aðalfundur félags sjálfstæðismanna í S...