Fimm ára fangelsi fyrir nauðgun

Héraðsdómur Reykjavíkur.

Héraðsdómur Reykjavíkur. mbl.is/Þorkell

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt tvo karlmenn, Arunas Bartkus sem er 31 árs, og  Rolandas Jancevicius, sem er 28 ára, í fimm ára fangelsi hvorn fyrir að nauðga konu í miðborg Reykjavíkur í nóvember á síðasta ári. Mennirnir voru einnig dæmdir til að greiða konunni 2 milljónir króna í miskabætur. 

Konan leitaði til neyðarmóttöku Landspítalans  egna nauðgunar. Hún sagðist hafa hitt tvo útlendinga á veitingastað við Laugaveg og þau töluðu þar saman. Konan sagðist fyrst hafa farið með mönnunum út úr veitingastaðnum en síðar að hún hefði farið ein út og verið að ganga heim þegar hún hitti mennina aftur. Mennirnir hefðu síðan hent eða ýtt henni með bakið ofan á vélarhlíf fólksbifreiðar, sem lagt hefði verið á milli hús­veggja við gangstétt nálægt Laugavegi. Mennirnir hefðu dregið gallabuxur hennar niður, flett upp bol hennar og peysu, klipið og kreist líkama hennar og síðan nauðgað henni.

Konan var með ýmsa áverka sem læknar töldu að samrýmdist frásögn hennar.

Annar maðurinn bar við yfirheyrslur að konan hefði samþykkt að hafa kynmök við þá en hinn sagðist hafa verið mjög ölvaður og myndi ekkert eftir kvöldinu. 

Í niðurstöðu dómsins segir m.a., að konan hafi verið stöðug í vitnisburði sínum um atvik í bifreiðaskýlinu, þótt lýsing atburðarásar hafi ekki ávallt verið með nákvæmlega sama hætti. Hún hafi þó einatt borið á sama veg, hjá lögreglu og fyrir dómi, um óvænta árás  Arunas Bartkus, hvernig hann hafi hrint henni á vélar­hlíf bifreiðar og löðrungað hana. Þá er vísað til þeirrar niðurstöðu sálfræðinga, að konan beri ótvíræð og sterk einkenni áfalla­streitu­röskunar.

Segir dómurinn síðan, að það sé hafið yfir skyn­sam­legan vafa, að mennirnir hafi beitt konuna kyn­ferðis­legu ofbeldi, eins og hún hafi lýst því fyrir dómi og að leggja skuli þá lýsingu til grund­vallar, enda ekkert haldbært fram komið í málinu, sem veiki  vitnisburð hennar eða dragi úr trúverðugleika hennar.

Mennirnir, sem eru Litháar, hafa báðir hlotið þunga dóma í heimalandi sínu, annar fyrir fjárkúgun og þjófnað og hinn fyrir rán. Segir dómurinn að við ákvörðun refsingar verði að horfa til þess hve hrotta­legur verknaður mannanna var, bæði í ljósi kringumstæðna og þeirra svívirðilegu og niðurlægjandi aðferða, sem þeir beittu gagnvart konu, sem þeir þekktu lítið og áttu ekkert sökótt við, þess gríðarlega sálartjóns, sem þeir ollu konunni samkvæmt áreiðanlegu vætti sálfræðings og fullkomins skeytingar­leysis fyrir líðan hennar, kynfrelsi og æru, þegar þeir veittust að henni í bílskýlinu, not­­­færðu sér og hlógu að bjargarleysi hennar, auðsýndu einbeittan ásetning til að koma fram vilja sínum og skirrðust einskis, þrátt fyrir beiðni hennar um miskunn, en við svo búið hurfu mennirnir á braut, eins og ekkert hefði í skorist.

Þá segir dómurinn að annar maðurinn hafi síðan borið við minnisleysi um atburði og hinn með auvirðilegum hætti vænt konuna um falska kæru, sem rót eigi að rekja til fjárgræðgi og vonbrigða með samfund við mennina í umræddu rými, um miðja nótt í þriggja stiga hita, og að auki gefið í skyn að hún hafi hlotið áverka á kynfærum við samræði með óskyldum aðila, í kjölfar samskipta við Litháana.

Að gættum öllum þessum atriðum er það ekki aðeins álit dómenda, að mennirnir hafi unnið til þungrar refsingar og eigi sér engar málsbætur heldur einnig, að þyngja beri refsingu þeirra sérstaklega í ljósi samverknaðar.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Héraðsdómur Suðurlands.

Alsírsku drengirnir áfrýja

16:25 Alsírsku drengirnir sem sakfelldir voru í héraðsdómi Suðurlands fyrir að framvísa fölsuðum vegabréfum við komu til Íslands hafa áfrýjað dómnum til hæstaréttar. Héraðsdómur dæmdi þá til 30 daga fangelsisvistar þann 30. apríl síðastliðinn. Meira »
Á sýningunni var hægt að skoða flugvélar af öllum stærðum og gerðum.

Listflug við Reykjavíkurflugvöll

15:54 Fjöldi fólks hefur í dag fylgst með flugvélum sýna listflug á Reykjavíkurflugvelli, en Flugmálafélags Íslands stóð fyrir flugsýningu þar sem hægt var að skoða flugvélar af öllum stærðum og gerðum. Meira »

Ákærður fyrir að stinga mann

Guðgeir Guðmundsson var úrskurðaður í gæsluvarðhald eftir árásina.
14:26 Ákæra gegn Guðgeiri Guðmundssyni, sem sakaður er að hafa 5. mars. sl. stungið tvo starfsmenn lögmannsstofnunnar Lagastoða, verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur á morgun. Annar mannanna særðist lífshættulega og lá í marga daga á gjörgæsludeild. Meira »

Klára kvótamálin í vikunni

Atvinnuveganefnd stefnir að því að klára umfjöllun um frumvarp um veiðigjald í vikunni.
14:05 Boðaður hefur verið fundur í atvinnuveganefnd Alþingis á morgun til að ræða um kvótafrumvörpin. Lilja Rafney Magnúsdóttir, varaformaður nefndarinnar, segir að frumvörpin verði ekki afgreidd úr nefndinni á morgun, en það verði gert síðar í vikunni. Meira »

Mætti innbrotsþjófum í forstofunni

12:05 Húsráðanda í Reykjanesbæ brá töluvert þegar hann kom heim til sín aðfaranótt laugardagsins en í forstofunni mættu honum tveir bláókunnugir karlmenn. Þeir tóku báðir til fótanna og hurfu út í nóttina. Meira »

Landsbjörg leitar enn að Ligitu

Ligitu Solomenceva
14:22 Landsbjörg leitar í dag að hinni 42 ára Ligitu Solomenceva frá Lettlandi. En til hennar hefur ekkert spurst síðan 13 maí. Hún var í sumarbústað við Meðalfellsvatn og var ein á ferð. Meira »

Hreint hjarta besta myndin

Grímur Hákonarson.
13:34 Heimildamynd Gríms Hákonarsonar Hreint hjarta var valinn besta heimildamyndin á Skjaldborg, hátíð íslenskra heimildamynda sem haldin var í sjötta sinn á Patreksfirði um helgina. Meira »

Veðurblíða víða um land

Búast má við fjölda fólks í sundi í dag.
11:35 Hiti fer allt upp í 20 gráður á Norðurlandi í dag en að sögn veðurfræðings hjá Veðurstofu Íslands verður mjög gott veður um allt land í dag og næstu daga. Meira »

Ölvaður ökumaður reyndi að stinga af

11:08 Sautján ökumenn óku yfir leyfilegum hámarkshraða við umferðareftirlit lögreglunnar á Suðurnesjum um helgina. Ellefu gerðust brotlegir með þeim hætti á aðeins þremur klukkustundum í kringum miðnætti í gær. Meira »

Ferry heillaði í Hörpu

Bryan Ferry í grænum bjarma á tónleikunum í Hörpu í gærkvöldi.
00:43 Bryan Ferry vakti stormandi lukku þegar hann kom fram í Hörpu í gærkvöldi. Ferry lék mörg af sínum þekktustu lögum, jafnt frá sólóferli sínum sem af plötum sínum með hljómsveitinni Roxy Music. Ferry kemur aftur fram í Hörpu í kvöld. Meira »

Kosningamiðstöð Þóru opnuð

Þóra Arnórsdóttir.
10:48 Kosningamiðstöð forsetaframboðs Þóru Arnórsdóttur verður opnuð í gömlu Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg í dag.   Meira »

Peningar ekki rót alls ills myndskeið

Peningar ekki rót alls ills
Í gær, 21:46 Framhaldsskólanemar eyða almennt mestum pening í mat, áfengi og bensín. Þeim gengur misvel að spara og fæstir hafa fengið nokkra fjármálafræðslu, en finnst þörf á því. Þetta kom í ljós þegar mbl.is spjallaði við ungmenni um fjármálalæsi, en í því hafa Íslendingar ítrekað fengið falleinkunn. Meira »

Fyrst til að verða meistari í bílasmíði

Anna Kristín á leið í útskriftina í gær.
Í gær, 21:19 „Áhuginn hafði alltaf blundað í mér,“ segir Anna Kristín Guðnadóttir, sem í gær útskrifaðist með meistarapróf í bílasmíði fyrst íslenskra kvenna. Meira »

Þriðja árið í röð í 19. - 20. sæti

Jónsi og Gréta á sviðinu í Bakú.
Í gær, 18:47 Íslenski Evróvisjónhópurinn var rúmlega hálfnaður á leiðinni heim þegar mbl.is náði tali af Hrafnhildi Halldórsdóttur nú fyrir stundu. Von er á hópnum til landsins með vél Icelandair í kvöld. Meira »

Catalina er í fullu fjöri

Catalina flugbáturinn sem flaug yfir Reykjavík í dag.
Í gær, 17:26 Flugbátar af Catalinagerð voru í notkun hér á landi á árunum 1944-1963 og var slík vél fyrsta íslenska flugvélin til að fljúga á milli landa og önnur lék stórt hlutverk í þorskastríðinu. 68 ára gömul Catalinavél sveif um loftin blá yfir Reykjavík í dag og verður til sýnis á Flugdeginum á morgun. Meira »

Átta umferðarslys á tíu dögum í og við Búðardal

Í gær, 19:40 Hvítasunnuhelgin virðist almennt ganga vel fyrir sig að sögn lögreglunnar um land allt enda sól og blíða víðast hvar og tíðindalítið ef frá er talið í Búðardal. Meira »

Flestir hlynntir staðgöngumæðrun

Í gær, 18:36 Meirihluti Íslendinga er fylgjandi staðgöngumæðrun. Munur er á skoðunum fólks á málefninu eftir stjórnmálaskoðunum og er andstaðan mest hjá kjósendum Vinstri grænna en minnst hjá þeim sem segjast kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Meira »

Skjaldborg í skjóli fjalla

Merki Skjaldborgarhátíðarinnar 2012
Í gær, 17:18 „Þetta litar bæjarlífið virkilega skemmtilega,“ segir Alda Davíðsdóttir, Skjaldborgarstjóri í Sjóræningjahúsinu á Patreksfirði. Um helgina hafa í kringum 300 manns sótt heimildamyndahátíðina Skjaldborg í bænum en þetta er í sjötta sinn sem hátíðin fer fram. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Íbúð til leigu í Garðinum
4 herbergja Íbúð til leigu í Garðinum á Suðurnesjum. Laus 1. júlí. Langtímaleiga...
15,2 fm bjálkahús - Verð kr. 725.000
Húsið er úr 44mm bjálkum. Húsið er ósamsett og til afhendingar strax. Áætlaður...
Whippet hvolpar
Hvolpar fæddir 27.04.12 nánari upplýsingar í síma 8603150 og gunnur@simnet.is w...
Zimmermann píanó
Til sölu vel meðfarið Zimmermann píanó. Verð 125.000. Upplýsingar í síma 84589...
 
Kennarasöður
Grunn-/framhaldsskóla
Kennarastöður Grunnskóli...
Hagvangur
Önnur störf
Húsvörður Upplýsingar veitir: Kristín ...
Samkoma
Félagsstarf
Samkoma, sunnudag kl. 17 Ken Lock...
Lausar kennarastöður við leik- og grunns
Grunn-/framhaldsskóla
Lausar kennarastöður við leik...