Bensíngjöfin festist í botni

Ökumaður missti stjórn á bíl sínum í dag þar sem hann ók suður Kringlumýrarbraut að Háaleitisbraut í Reykjavík en bensíngjöf bílsins  festist í botni.  Í stað þess að aka inn á gatnamótin sveigði ökumaðurinn til vinstri og ók þvert yfir akreinarnar til norðurs.

Bíllinn lenti ekki á öðrum bílum, en hafnaði að lokum á verslunarhúsnæði Bræðranna Ormson. Ökumaðurinn var fluttur á slysadeild en var ekki talinn alvarlega slasaður.

Fjörutíu og fjögur umferðaróhöpp hafa orðið á höfuðborgarsvæðinu frá því kl. 15 í gær. Flest óhöppin voru inniháttar og ekki urðu alvarleg slys á fólki.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert