Keyrði þrisvar á

Ölvaður ökumaður olli töluverðum skemmdum.
Ölvaður ökumaður olli töluverðum skemmdum. mbl.is/Július

Kona á fimmtugsaldri hóf ökuferð með því að aka á sína eigin bílskúrshurð við Suðurgötu í Hafnarfirði, bakkaði síðan á kyrrstæðan bíl skammt frá og stöðvaðist för hennar er hún lenti í árekstri við annan bíl. Konan gistir nú fangageymslur lögreglunnar sökum ölvunar.

Að sögn lögreglunnar var konan mjög ölvuð en atvikið varð klukkan hálf fjögur í dag. Engin slys urðu á mönnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert